Hrannar Pétursson íhugar forsetaframboð

Hrannar Pét­urs­son, fyrrum fram­kvæmda­stjóri mannauðs-, mark­aðs- og lög­fræði­mála hjá Vodafone á Íslandi, íhugar að bjóða sig fram til for­seta Íslands næsta sumar. „Það hafa margir spurt að því á und­an­förnum vikum hvort ég ætli að bjóða mig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Mér þykir vænt um að fólk skuli hugsa til mín sem mögu­legs fram­bjóð­anda á sama tíma og það nefnir þörf­ina á að for­seti veiti þjóð­inni inn­blástur, tali fyrir virð­ingu í sam­fé­lag­inu og sé bæði sann­gjarn og stað­fastur. Ég hef tekið þetta til mín en það er stór ákvörðun að bjóða sig fram og hún verður ekki tekin í flýti," segir Hrannar í sam­tali við Kjarnann.

Hrannar er félags­fræð­ingur, fæddur og upp­al­inn á Húsavík. Hann var um tíma sjón­varps­frétta­maður fyrir tæpum tveimur ára­tugum en hefur síðan mest starfað við upp­lýs­inga- og sam­skipta­mál, fyrst hjá ISAL sem á og rekur álverið í Straums­vík og síðar fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Vodafone þar sem hann stýrði einnig mannauðs-, mark­aðs- og lög­fræði­málum. Þá starf­aði hann sem verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu þar til í nóv­em­ber 2015, þar sem hann sinnti verk­efnum fyrir ráðu­neyt­is­stjóra, en rekur nú eigið upp­lýs­inga- og sam­skipta­fyr­ir­tæki.

For­seta­fram­boð Hrannars virð­ist njóta stuðn­ings á heima­slóðum hans á Húsavík því í hér­aðs­frétta­blað­inu Skarpi, sem kom út í dag, er skorað á Hrannar að taka slag­inn. Þar er hann er sagður brúa bil ólíkra skoð­ana, hafa marg­þætta reynslu sem sér­fræð­ingur og stjórn­andi úr atvinnu­líf­inu auk þess sem hann þekki vel inn­viði stjórn­sýsl­unnar, án þess þó að vera stjórn­mála­maður. Hann sé mælskur, komi vel fyrir og sé huggu­legur.

Þá getur blaðið sér til um að Hrannar sé get­inn á fyrsta heim­ili for­eldra sinna, en þau bjuggu sín fyrstu hjú­skap­arár í húsi sem bar heitið Bessa­staðir. Nú sé kom­inn tími til að Hrannar flytji til Bessa­staða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár