BBC búið að reka Jeremy Clarkson úr Top Gear-þáttunum

Jeremy Clarkson, sem hefur verið einn þriggja þátta­stjórnenda Top Gear um árabil, hefur verið rekinn, samkvæmt frétt CBS frétta­stofunnar.

Mark White, starfs­maður Sky News, tvítaði sömu niður­stöðu fyrr í dag.

BREAKING - Top Gear presenter Jeremy Clarkson has been sacked by the BBC over his fracas with a producer

— Mark White (@skymarkwhite) March 25, 2015

Bæði The Telegraph og The Guardian greindu frá því í morgum að Clarkson myndi líkast til verða rekinn fyrir atvik sem átti sér stað á hóteli fyrir nokkrum vikum, eftir langan tökudag á þáttunum. Clarkson lenti þá saman við einn fram­leiðenda þáttarins, en ekki hefur verið upplýst að öllu leyti hvað átti sér stað. Samkvæmt frétt Telegraph mun æðsti yfirmaður BBC, Tony Hall lávarður, tilkynna það í nánustu framtíð að Clarkson hafi ráðist á fram­leiðandann, Oisin Tymon.

Brott­rekstur Clarkson mun líkast til þýða endalok Top Gear-þáttanna, sem eru ein vinsælasta söluvara BBC. Þrettán ár eru síðan að þættirnir hófu göngu sína. Top Gear eru sýndir á alls 215 svæðum út um allan heim og þátturinn halaði inn yfir 30 milljarða króna í tekjur fyrir BBC Worldwide á síðasta ári.

Samkvæmt frétt The Guardian mun BBC reyna að endur­hanna þáttinn í kringum hina tvo þátta­stjórnendurna, Richard Hammond og James May. Breskir fjöl­miðlar virðast þó flestir sammála um að það sé misráðið. Clarkson hafi alltaf verið þunga­miðja þáttanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár