Íþróttakonur sem hafa ekki frelsi til að velja

Mót­mæl­endur í Íran hafa í mánuð barist fyrir frelsi kvenna til að velja. Íranska klif­ur­konan Elnaz Rekabi hafði ekki frelsi til að velja þegar hún var þvinguð til að biðj­ast afsök­unar á að bera ekki slæðu við keppni. Og hún er ekki ein.

Elnaz Rekabi bar ekki slæðu við keppni á asíska meistaramótinu í klifri um síðustu helgi. Írönsk stjórnvöld þvinguðu hana til að biðjast afsökunar.
Elnaz Rekabi bar ekki slæðu við keppni á asíska meist­ara­mót­inu í klifri um síð­ustu helgi. Írönsk stjórn­völd þving­uðu hana til að biðj­ast afsök­unar. Mynd: EPA

Elnaz Rekabi tók þátt í asíska meist­ara­mót­inu í klifri í Suður-Kóreu um síð­ustu helgi. Eftir keppni hvarf hún spor­laust. Hún var ekki með höf­uð­slæðu á meðan hún keppti, líkt og lög kveða á um í heima­landi hennar, Íran, og fljót­lega vökn­uðu spurn­ingar hvort hvarf hennar hefði eitt­hvað með það að gera.

Mynd­skeið af Rekabi þar sem hún keppir án slæð­unnar fór á flug á sam­fé­lags­miðlum og var Rekabi lofuð fyrir að standa uppi í hár­inu á írönskum stjórn­völdum.

Hörð mót­mæli hafa staðið yfir í Íran síð­ast­liðnar fimm vikur eftir að Mahsa Amini, 22 ára kona frá Kúr­distan, lést í haldi sið­­gæð­is­lög­regl­unnar í Íran. Amini var á ferða­lagi í Teher­an, höf­uð­­borg Íran, um miðjan sept­em­ber þegar íranska sið­­gæð­is­lög­reglan hand­tók hana fyrir meint brot á reglum um að bera slæðu. Mat sið­­gæð­is­lög­reglan það svo að slæðan huldi ekki næg­i­­lega mikið af höfði hennar þar sem hár hennar var sýn­i­­legt. Þá hafi klæðn­­aður hennar einnig verið „óvið­eig­and­i“.

Skikka átti Amini á nám­­skeið um klæða­­burð en skömmu eftir hand­­töku hennar féll hún í dá. Hún lést á sjúkra­­húsi þremur dögum síð­­­ar. Fjöl­­skylda hennar og vitni segja að hún hafi verið barin til dauða. Yfir­­völd full­yrða hins vegar að hún hafi fengið hjarta­á­­fall.

Rekabi er meðal fremstu keppn­iskvenna í klifri í heimi. Á síð­asta ári varð hún fyrsta íranska konan sem vann til verð­launa á heims­móta­röð­inni í klifri og í keppn­inni um síð­ustu helgi varð hún í fjórða sæti. Eftir að mót­inu lauk heyrði hvorki fjöl­skylda hennar né vinir frá henni en þau vissu síð­ast af henni í fylgd íransks emb­ætt­is­manns.

Sendiráðið „hafnar öllum falsfréttum, lygum og upplýsingaóreiðu“

Í til­kynn­ingu sem íranska sendi­ráðið í Suður-Kóreu sendi frá sér á þriðju­dag sagði að Rekabi væri á leið heim til Tehran. „Sendiráð íslamska lýð­veld­is­ins Írans í Suður-Kóreu hafnar öllum fals­fréttum, lygum og upp­lýs­inga­óreiðu um fröken Elnaz Rekabi,“ sagði í til­kynn­ingu sendi­ráðs­ins.

Rekabi birt­ist svo á Instagram á þriðju­dag­inn, um tveimur sól­ar­hringum eftir að hún lauk keppni, þar sem hún sagð­ist vera heil á húfi. Hún baðst afsök­unar á að hafa valdið áhyggjum, þær hafi verið óþarfi. Ástæða þess að hún bar ekki höf­uð­slæðu í keppn­inni áttu sér eðli­legar skýr­ingar, slæðan hefði ein­fald­lega dottið af í hama­gang­inum þar sem hún var kölluð fyrr til leiks en hún bjóst við.

Rekabi kom til Tehran snemma á mið­viku­dags­morgun þar sem fjöl­skylda hennar tók á móti henni. En þau voru ekki þau einu. Fjöldi fólks safn­að­ist saman við Imam Khomeini-flug­völl­inn og tóku fagn­andi á móti Rekabi.

„Kven­hetja,“ kyrj­uðu þau sem tóku á móti henni. Mót­mæl­endur sem hafa fjöl­mennt á götur borga víðs vegar í Íran eftir and­lát Amini eru á öllum aldri, konur jafnt sem karl­ar, en það sem er ef til vill nýtt við mót­mælin nú er að þau eru leidd af konum af öllum kyn­slóðum og hafa stjórn­mála­skýrendur full­yrt að um fem­iníska bylt­ingu sé að ræða, bylt­ingu þar sem krafan snýst um frelsi til að velja.

Afsökunarbeiðnin var þvinguð

Samkvæmt heim­ildum pers­nesku útgáfu BBC hafði Rekabi þó ekki frelsi til að velja þar sem hún var neydd til að biðj­ast afsök­unar. Írönsk yfir­völd hót­uðu að svipta fjöl­skyldu hennar öllum eignum sínum ef hún færi ekki að fyr­ir­mælum stjórn­valda.

Þá hefur fjöl­mið­ill­inn Iran Wire, sem er gagn­rýn­inn á írönsku klerka­stjórn­ina, heim­ildir fyrir því að for­maður íranska klif­ur­sam­bands­ins hafi sann­fært Rekabi um að koma í sendi­ráðið að keppni lok­inni og lofað því að hún kæm­ist örugg heim til Írans ef hún afhenti sím­ann sinn og vega­bréf.

Við kom­una til Íran baðst Rekabi afsök­unar á því sem gerst hafði og ítrek­aði að höf­uð­slæðan hefði dottið af „fyrir slysni“. Rekabi bar ekki slæðu en klædd­ist hettu­peysu og huldi hár sitt með der­húfu.

Óljóst er hvert Rekabi fór frá flug­vell­inum í Tehran. Nokkuð víst þykir að hún fór ekki heim og hefur Iran Wire heim­ildir fyrir því að henni hafi verið fylgt beint á fund íþrótta­mála­ráð­herra Írans. Þaðan hafi hún svo verið færð í stofu­fang­elsi, fjarri heim­ili hennar. Írönsk yfir­völd hafna því en segja hana vera heima þar sem hún sé þreytt og þurfi að hvíl­ast.

Langt frá því að vera einsdæmi

Mál Rekabi er ekki eins­dæmi. Stjórn­völd ann­arra ríkja hafa gripið inn í þegar þekktar íþrótta­konur gera eitt­hvað sem varpað getur skugga á ágæti rík­is­ins. Kína er gott dæmi um það.

[links]Í nóv­em­ber í fyrra birti kín­verska tenn­is­stjarnan Peng Shuai færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Weibo þar sem hún sak­aði fyrr­ver­andi vara­for­seta Kína um að hafa þvingað hana til kyn­maka. Færslan var ítar­leg, 1.600 orð, þar sem Peng lýsti sam­skiptum hennar við vara­for­set­ann í smá­at­riðum. ­Færslan var fjar­lægð um tutt­ugu mín­útum eftir að hún birt­ist og ekk­ert heyrð­ist frá Peng sem virt­ist hafa horfið spor­­laust.

Um tveimur vikum eftir að færslan birt­ist á Weibo birti rík­­­is­­­fjöl­mið­ill­inn CGTN tölvu­­­póst sem Peng sendi fram­kvæmda­stjóra Samtaka kvenna í tennis. Þar segir að hún sé örugg og að ásak­an­­­irnar sem birt­ust á Weibo séu ekki sann­­­ar. Fjórum dögum seinna, 21. nóv­­em­ber, birt­ust mynd­­skeið af Peng, ann­­ars vegar á veit­inga­­stað og hins vegar á tennis­­móti barna, en trú­verð­ug­­leiki þeirra var dreg­inn í efa, ekki síst þar sem þau voru birt af Hu Xijin, rit­­­stjóra Global Times, rík­­­is­rek­ins fjöl­mið­ils.

Í des­em­ber sagði Peng í við­tali við blaða­mann frá Singa­pore að hún hefði alltaf verið frjáls ferða sinna. „Af hverju ætti ein­hver að fylgj­­ast með mér?“ sagði hún í við­tal­inu.

[adspot]Í febr­úar sagð­ist Peng í við­tali í L'Equipe lifa eðli­legu lífi.nokkuð sem kín­versk stjórn­völd hafa full­yrt áður. Peng þakk­aði einnig öllum þeim sem hafa hugsað til hennar en sagð­ist á sama tíma ekki skilja hvaðan áhyggj­urnar koma. „Mig langar að vita: Af hverju allar þessar áhyggj­ur? Ég sagði aldrei að ein­hver hefði mis­notað mig kyn­ferð­is­lega,“ sagði hún í sam­tali við blaða­mann L'Equipe.

Lítið hefur heyrst af Peng frá því í febr­úar. Í við­tal­inu í L'Equipe gaf hún til kynna að tenn­is­ferli hennar væri brátt að ljúka. „Með til­liti til ald­urs míns, fjölda aðgerða og heims­far­ald­urs­ins sem hefur neytt mig til að hætta að spila svona lengi tel ég að það verði mjög erfitt fyrir mig að ná aftur lík­am­legum styrk,“ sagði Peng.

Íþrótta­ferli Elnaz Rekabi, sem er 33 ára, er hvergi nærri lokið. Óljóst er þó hvernig honum verður háttað, en reikna má með að klerka­stjórnin muni hafa góðar gætur á henni. Rekabi birti færslu á Instagram á föstu­dag þar sem hún þakk­aði öllum íbúum í Íran fyrir stuðn­ing­inn og sagð­ist ekki geta kom­ist yfir „hindr­anir fram­tíð­ar­innar“ án hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár