Átakanleg saga þolanda mansals sem ákveðið hefur verið að senda úr landi

Kærunefnd útlendinga­mála og Útlendinga­stofnun hafa synjað 21 árs þolanda mansals og kynferðis­ofbeldis um alþjóð­lega vernd og dvalar­leyfi. Hér er saga hans.

Lögreglan hafði samband
Lög­reglan hafði sam­band Uhunoma Osa­yomore fékk sím­tal frá lög­reglu í dag og verður sendur úr landi. Kæru­nefnd útlend­inga­mála trúir frá­sögn hans um kyn­ferð­is­of­beldi og ofbeldi föður hans.

Ungur maður að nafni Uhunoma Osayomore, þolandi mansals og kynferðis­ofbeldis, lagði á flótta frá heima­landi sínu, Nígeríu, á barns­aldri og kom hingað til lands yfir tæpu einu og hálfu ári síðan. Hann hefur að mati Magnúsi Norðdahl, lögmanni hans, myndað sterk félagsleg tengsl á Íslandi. Í dag hafði lögreglan samband við hann. Hann verður sendur úr landi vegna niður­stöðu Útlendinga­stofnunar og kæru­nefndar útlendinga­mála.

Missti móður sína, flúði föður sinn

Í frásögn Uhunoma, sem Útlendinga­stofnun og kæru­nefndin hafa ekki lýst neinum efa um, kemur fram að hann flúði heimaland sitt á sautjánda aldursári vegna alvarlegs ofbeldis og ofsókna af hálfu föður síns en faðir hans hafði beittt hann ofbeldi nánast hvern einasta dag. Þá hafi faðirinn einnig beitt móður hans og yngri systur ofbeldi reglulega.

Sögu Uhunoma er lýst í úrskurði kæru­nefndar útlendinga­mála. Árið 2015 varð hann vitni að því að faðir hans hafi beitt móður hans svo miklu ofbeldi að hún hafi í kjölfarið látist. Tveimur mánuðum síðar tók faðir hans saman við nýja konu sem einnig hafi beitt Uhunoma harðræði. 

Faðir hans skyldaði hann til þess að fá sér vinnu til að afla tekna fyrir heimilið og því fór Uhunoma að selja vatn og flögur á götum úti. Eitt sinn hafði systir hans fylgt honum til vinnu en þann dag varð hún fyrir slysi sem síðar leiddi hana til dauða.

Uhunoma hafði engin önnur tengsl í heima­landi sínu fyrir utan einn frænda sinn í móðurætt sem kom honum ekki til aðstoðar vegna þess hve hann óttaðist föður hans. Faðir hans er bendlaður við glæpa­starfsemi í heima­landi sínu ásamt því að eiga byssu, þar að auki á hann samkvæmt Uhunoma vini og kunningja í lögreglunni. Vegna þessa gat hann ekki leitað til lögreglunnar vegna ofbeldisins.

Hræðileg ferðasaga

Leið Uhunoma til Íslands var löng og ströng. Þegar hann bjó enn í Nígeríu samdi hann við aðila sem flytja fólk til Líbýu um að koma sér þangað. Í Líbýu segist hann hafa verið látinn vinna fyrir nígeríska konu sem hafði rekið þar veitinga­stað, en þannig borgaði hann fyrir ferðina.

Uhunoma vann fyrir konuna í fimm mánuði samtals áður en hún var myrt af fólki sem kom inn á veitinga­staðinn í leit að eigin­manni hennar, samkvæmt frásögn hans.

Þá komst hann í kynni við fólk sem bjó í fátæktar­hverfi, en fólkið hafði verið á leið frá Líbýu til Ítalíu. Þangað langaði hann einnig að fara svo hann fékk sér vinnu á sveita­býli til að safna sér fyrir ferðinni. Hann fékk þó ekki greitt fyrir vinnuna en fékk þess í stað að sofa í útihúsi nálægt heimili eigandans. Í frásögn hans kemur fram að eigandinn kom fjórum sinnum inn í útihúsið og nauðgaði honum og áverkarnir voru svo alvarlegir að hann finnur enn þann dag í dag fyrir sársauka vegna þeirra.

Eitt sinn heyrði Uhunoma eigandann rífast við eiginkonu sína vegna þess hvað hann hefði gert honum. Þá ákvað hann að hann skyldi leggja á flótta vegna ótta við að samræðurnar myndu valda honum vandræðum. Uhunoma komst á bát til Ítalíu en þar var umsókn hans um alþjóð­lega vernd einnig synjað svo hann þurfi að búa á götunni og betla peninga til eiga fyrir mat. 

Á götunni varð hann fyrir líkams­árás þegar menn reyndu að ræna síma hans sem varð til þess að hann hlaut áverka á hendi og fingrum. Hann náði þó að betla nægan pening til að eiga fyrir ferð sinni til Íslands.

Faðir Uhunoma kom þeim skila­boðum til hans að ef hann ætlaði sér að snúa aftur til Nígeríu myndi hann myrða hann.

Flótta­mennBátur með flótta­mönnum á leið frá Lýbíu út á Mið­jarð­ar­hafið í mars 2019.

Neitað um dvalarleyfi

Uhunoma hefur verið neitað um dvalar­leyfi og alþjóð­lega vernd á grund­velli mannúðar­sjónarmiða vegna þess að íslensk stjórn­völd telja að hann sé öruggur í heima­landi sínu og geti fengið þar viðunandi aðstoð. 

Magnús segir það ranglega metið. „Alþjóðlegar skýrslur taka af öll tvímæli um hversu slæmt ástandið þar í landi er. Sem dæmi má nefna að fjöldi geðlækna þar í landi er einungis 300 talsins en heildar­fjöldi íbúa rúmar 200 milljónir. Þá hafa fórnar­lömb mansals litla sem enga möguleika á því að leita til lögreglu­yfirvalda þar í landi vegna land­lægrar spillingar og sinnu­leysis í garð hóps mansals­fórnarlamba. Mat stjórn­valda á aðstæðum mansals­fórnarlamba í Nígeríu er óforsvaranlegt og rangt.“

Málið segir hann hluta af fjölda mála þar sem fórnar­lömbum mansals og kynferðis­ofbeldis sé synjað um vernd hér á landi. Hann segir það sorglega þróun. „Það er ákaflega sorgleg þróun og ekki í takt við þær áherslur stjórn­valda á mann­réttindi og vernd þeirra sem hafa orðið fyrir ofbeldi af þessu tagi.“

Synjað um frestun réttaráhrifa

Uhunoma hefur jafnframt verið synjað um frestun réttar­áhrifa sem að sögn Magnúsar felur í sér að nefndin vill að honum verði komið úr landi með valdi áður en honum gefst færi til þess að bera mál sitt undir dómstóla. „Það er ankannalegt og að mínum dómi brot á stjórnar­skárvörðum rétti borg­aranna að að þeim sé vísað úr landi áður en dómstólar hafa fjallað um réttmæti máls­meðferðarinnar sem þeir máttu sæta,“ segir hann. 

Málið er á leið inn á borð Héraðs­dóms Reykja­víkur á næstu dögum og endur­upptöku­beiðni verður einnig send á kærunefnd útlendinga­mála.

Meta frásögnina trúveðuga

Þrátt fyrir að Uhunoma hafi verið synjað um hæli metur kærunefnd útlendinga­mála frásögn hans trúverðuga.

„Mat á trúverðug­leika frásagnar kæranda er byggt á endur­ritun viðtala hans hjá Útlendinga­stofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.“

Í úrskurðinum segir jafnframt að kærunefnd fallist á að hann hafi flúið heima­landið vegna ofbeldis föður síns og að hann glími við andleg og líkamleg vandamál vegna kynferðis­legs ofbeldis sem hann hafi orðið fyrir í Lýbíu. Í sálfræði­mati kemur fram að Uhunoma sé greindur með áfalla­streitu­röskun. Hann glími við vonleysi, vanlíðan, svefn­leysi og sjálfsvígs­hugsanir. Hins vegar er hann talinn af kæru­nefndinni vera öruggur í Nígeríu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár