Vildu fella út ákvæði um gjald á húseigendur vegna varnargarða

Minni­hluti alls­herj­ar­nefndar vildi að ákvæði um sér­staka gjald­töku á alla hús­eig­endur lands­ins yrði fellt út úr frum­varp um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesi. Þrátt fyrir að því hafi verið hafnað sam­þykktu þing­menn­irnir frum­varpið sem varð að lögum seint í gær­kvöldi.

Virkjunin varin
Virkj­unin varin Bygging varn­ar­garðar við orku­verið í Svarts­engi er þegar hafin. Öll fram­kvæmdin verður greidd úr rík­is­sjóði og fjár­mögnuð með gjaldi sem lagt verður á hús­eig­endur. Garð­arnir verða allt að átta metrar á hæð. Myndin sýnir mögu­legt útlit þeirra. Mynd: Verkís

Rétt fyrir mið­nætti í gær, mánu­dag, voru sam­þykkt lög á Alþingi um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga. Þau veita dóms­mála­ráð­herra heim­ild, að feng­inni til­lögu rík­is­lög­reglu­stjóra, að taka ákvörðun um nauð­syn­legar fram­kvæmdir í þágu almanna­varna sem miða að því að koma í veg fyrir að mik­il­vægir inn­viðir verði fyrir tjóni af völdum nátt­úru­vár sem teng­ist eld­stöðvakerfum á Reykja­nesskaga. Þegar er hafin vinna við bygg­ingu garða til verndar orku­veri HS Orku í Svarts­engi, sem einnig munu vernda Bláa lónið.

Í til­lögu almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra verður garð­ur­inn full­byggður um fjögur hund­ruð þús­und rúmmetrar að stærð. Hann verður þó byggður í áföngum. Byrjað verðu á því að reisa 2–3 metra varn­ar­línu sem síðan verður hækkuð upp í að með­al­tali átta  metra hæð. Þrátt fyrir að unnið yrði á vöktum og með tölu­verðum afköstum verk­taka má gera ráð fyrir að það taki um 30-40 sól­ar­hringa að full­byggja garð­inn.

Fjármagnað með gjaldi á húseigendur

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins kemur fram að kostn­aður við upp­bygg­ingu varn­ar­garðs við Svarts­engi sé áætl­aður 2,5 millj­arðar króna auk 20% óvissu sem gert er ráð fyrir að minnki þegar nán­ari upp­lýs­ingar liggja fyrir.

Með laga­setn­ing­unni er einnig sett á  gjald­taka til þriggja ára, svo­nefnt for­varna­gjald, sem inn­heimt verður af bruna­tryggðum hús­eignum. Gjaldið rennur í rík­is­sjóð, segir í grein­ar­gerð frum­varps­ins, og að því sé ætlað að standa undir kostn­aði við fyr­ir­byggj­andi fram­kvæmdir. Af því leiðir, segir í grein­ar­gerð­inni, „að allur kostn­aður vegna þeirra fram­kvæmda sem dóms­mála­ráð­herra ákveður að ráð­ast í“ sam­kvæmt hinum nýsam­þykktu lögum greið­ist úr rík­is­sjóði.

PíratiHalldóra Mogensen.

Minni­hluti alls­herj­ar­nefndar, sem skip­aður er Halldóru Mogensen, þing­manni Pírata, Bergþóri Ólasyni, Mið­flokki og Eyjólfi Ármanns­syni, þing­manni Flokks fólks­ins, gerði þennan hluta frum­varps­ins að umfjöll­un­ar­efni í áliti sínu á frum­varp­inu. Í stað þess að standa undir fyr­ir­séðum útgjöldum við bygg­ingu varn­ar­garða og fleiri fram­kvæmda með nýjum skatti taldi minni­hlut­inn „eðli­leg­ast að greiða þessi útgjöld ein­fald­lega beint úr rík­is­sjóði“. Í sam­hengi rík­is­fjár­mála væri ekki um óyf­ir­stíg­an­lega fjár­hæð að ræða og því ein­fald­ara að líta til vara­sjóðs rík­is­stjórn­ar­innar eða bæta útgjöld­unum við fjár­lög næsta árs.

Hver er asinn?

For­varn­ar­gjald­inu er ætla að vera tíma­bundið en minni­hlut­inn bendir í áliti sínu á að í flutn­ings­ræðu for­sæt­is­ráð­herra hafi komið skýrt fram að áform væru um að taka upp sam­bæri­lega gjald­töku með var­an­legum hætti á næstu árum til að standa straum af kostn­aði sem kann að hljót­ast af auk­inni eld­virkni og vax­andi hættu á vatns­flóðum. „Ef rík­is­stjórnin telur ástæðu til að koma slíkri gjald­töku á með var­an­legum hætti væri eðli­legt að ræða kosti og galla slíkrar umgjarðar í sjálf­stæðu þing­máli sem fengi fulla þing­lega með­ferð, frekar en að stíga fyrstu skrefin í þá átt með frum­varpi sem afgreitt er á einum degi„. Jafn­framt taldi minni­hlut­inn óljóst hver „asinn“ væri við þann hluta máls­ins í ljósi þess að gjald­töku­á­kvæðið á ekki að taka gildi fyrr en um ára­mótin. Minni hlut­inn lagði því til að fella brott þau ákvæði frum­varps­ins sem sneru að sér­stakri gjald­töku vegna fram­kvæmda við varn­ar­garða í nágrenni Svarts­engis, og var breyt­ing­ar­til­laga þess efnis lögð fram. 

Hún var felld.

En þrátt fyrir að gjald­takan hafi verið inni í frum­varp­inu er um það voru greidd atkvæði eftir þriðju umræðu máls­ins á Alþingi sam­þykktu þing­menn minni­hluta alls­herj­ar­nefndar það enda töldu þeir mark­mið þess, að byggja varn­ar­garða til að vernda byggð­ina í Grinda­vík og nauð­syn­lega inn­viði, mik­il­vægt.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Það var vægast sagt stórundarleg ákvörðun að láta Grindvíkinga taka þátt í fjármögnun varnarmannvirkja umhverfis einkafyrirtæki með skatti á hús þeirra. Jafnvel þó húsin fari ekki undir hraun þá eru mörg þeirra nú þegar mikið skemmd og vel gæti þannig farið að þetta yrðu einu húsin á landinu sem verða Reykjaneseldum að bráð. Það er nokkuð augljóst að þau verða ónothæf það sem eftir er þessa árs nema e.t.v. með ströngum skilyrðum um að íbúar séu reiðubúnir að rýma þau fyrirvaralaust hvenær sem er. Sennilega væri best fyrir alla að miða við að ekki verði föst búseta í Grindavík þetta skólaár.
    0
  • Guðjón Halldórsson skrifaði
    Það vantar að krefjast svar við þeirri einföldu spurningu hvers vegna hluthafar einkafyrirtækjann sem verið er að vernda og bjarga eru ekki látin borga ! og samkvæmt forsætisráðherra, þá kom það ekki til umræðu - hverslags rugl stjórnsýsla og virðingaleysi fyri skattfé er hér í gangi.
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Ég hef sagt það áður og ætla að segja það enn og aftur. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er gjörspillt valdaelíta sem svífst einskis. Veit ekki hvernig aðrir flokkar myndu höndla aðstæður sem þessar en eins og þið vitið þá stendur Bjarni Benediktsson fyrir sölu á bönkum og öllu því sem einhver gróði er af, ástæðuna segir hann vera að ríkið eigi ekki að standa í áhættufjárfestingum.

    Við sáum það í Covidinu að sterkefnuð fyrirtæki í einkaeigu þar sem framkvæmdastjórar mala gull og lifa skv. því, fengu rekstrarstyrki og greiddu svo sér sveran arð stuttu síðar. Við sáum þetta í bankasölunni og við sjáum þetta enn. En, svo kemur fallið og hver ber þá ábyrgðina þegar glæpahyskið hefur mergsogið eignir sem við höfum stofnað til?

    Allmenningur borgar en glæpahyskið stofnar nýja kennitölu og byrjar upp á nýtt.

    Bláa Lónið og HS orka er í einkaeigu en forsætisráðherfan er á sömu línu og Bjarni Ben. Alamenningur á að borga þau troða ofaní kokið á okkur tillögu þess efnis að húseigendur skuli greiða. Annaðhvort er Katrín Jakobsdóttir glæpakvendi eða nautheimsk nema að hvort tveggja sé. Það er aldrei betra að koma einhverju í gegn en þegar almenningur er í sjokki og finnur til með þolendum.

    Einkavæða allan gróða og ríkisvæða allt tap. Andskotinn!
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár