Reykja­nes­eld­arnir Ekki er hægt að úti­loka eld­gos á Reykja­nesi í ár. Mynd: Golli

Vísindaleg óvissa, eldgos og baráttan um náttúru Íslands

Vís­inda­sam­fé­lag í upp­námi, mögu­legt eld­gos á Reykja­nesskaga, vernd­ar­svæði í hafi og deilur um fram­kvæmdir í íslenskri nátt­úru eru meðal þess sem nýtt ár ber í skauti sér. Heim­ildin horfði til fram­tíðar og ræddi við sér­fræð­inga um umhverfis- og lofts­lags­málin.

Baráttan um nátt­úru Íslands, aðför að lofts­lags­vís­inda­fólki og mögu­leg eld­gos eru meðal þess sem nýtt ár kann að bjóða upp á. Heim­ildin tók saman þau atriði í umhverfis- og lofts­lags­málum sem eru lík­leg til þess að vera í deigl­unni á árinu og ræddi við sér­fræð­inga um okkar nánu fram­tíð.

Óviss framtíð vísindanna

Halldór Þor­geirs­son, for­maður Lofts­lags­ráðs, seg­ist hafa „áhyggjur af hnignun vís­inda­kerf­is­ins“ þegar litið er fram á veg­inn. Slíkt megi rekja til aðgerða Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta síðan hann tók emb­ætti að nýju fyrir ári síðan.

Trump hefur ásamt fleiri efa­semda­mönnum sagt lofts­lags­breyt­ingar vera blekk­ingu. Í yfir­lýs­ingu frá Hvíta hús­inu sagði tals­konan Taylor Rogers að stjórn Trumps hefði „end­ur­heimt heil­brigða skyn­semi í orku- og sjálf­bærni­stefnu Banda­ríkj­anna, sparað Banda­ríkja­mönnum millj­arða af vel áunnu skattfé þeirra og vinni hörðum höndum að því að tryggja að allir Banda­ríkja­menn hafi aðgang að hreinu lofti, vatni og landi“.

Halldór Þor­geirs­sonSegir hnignun vís­inda­kerf­is­ins áhyggju­efni.
Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    EITT I DAG OG ANNAÐ Á MORGUN
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    EITT I DAG OG ANNAÐ Á MORGUN
    0
  • Hrefna Sigurjónsdóttir skrifaði
    Takk fyrir yfirgripsmikla og góða umfjöllun. Vonandi verða fjölmiðlar virkari en þeir hafa verið að undanförnu í að fjalla faglega um umhverfismálin og náttúruverndina.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár