Vilja að Facebook hætti njósnum og fara í mál

Max Schrems, austurrískur lögfræðistúdent, flutti í dag prófmál fyrir dómstólum á Írlandi gegn Facebook. Schrems fer fyrir hópi 25.000 Facebook-notenda sem telja vegið að friðhelgi einkalífs þeirra á Facebook.

Facebook hefur, að mati Schrems brotið gegn ýmsum réttindum sem fólki eru tryggð í Evrópu­löggjöfinni. Þá er þáttaka samfélags­miðilsins í PRISM, eftirlits­verkefni bandarísku þjóðar­öryggis­stofnunarinnar, einn liður í málflutningi Schrems.

„Við erum einfald­lega að biðja Facebook að hætta njósnum,“ sagði Schrems í viðtali við AFP-frétta­stofuna sem greinir frá. „Við viljum líka að miðillinn sé með alvöru notenda­skilmála sem fólk getur skilið og að Facebook hætti að safna gögnum um fólk sem er ekki einu sinni með reikning á Facebook.“

„Það eru fjölmörg atriði í þessari kæru og við vonumst til að vinna í öllum liðum hennar og setja þannig fordæmi gegn bandarískum upplýsinga­safnandi fyrir­tækjum,“ segir hann og segir það jafnvel verða áhugavert tapi hann málinu vegna þess að það muni vekja upp áhuga­verðar spurningar um hvers vegna lögum sé ekki framfylgt.

Höfuð­stöðvar Facebook í Evrópu eru í Dublin á Írlandi. Þaðan sinnir Facebook öllum reikningum notenda utan Bandarikjanna og Kanada. Samtals eru það um 80 prósent af öllum notendum Facebook sem eru um 1,35 milljarðar.

Forsvars­menn Facebook hafa ekki viljað tjá sig um lögsóknina.

Höfuð­stöðvar Facebook í Dublin eru glæsilegar, í takt við umsvif samfélags­miðilsins á vefnum.

Áhugi fólks á lögsókn Schrems hefur verið gríðar­legur síðan hann tilkynnti um fyrir­ætlanir sínar í ágúst í fyrra. Hann gaf fólki kost á að taka þátt í málinu og innan nokkurra daga höfðu mörg þúsund manns sýnt áhuga, ekki aðeins frá Evrópu heldur einnig frá Asíu, Suður-Ameríku og Ástralíu.

Schrems kaus þó að hafa hópinn ekki stærri en 25.000 manns en þegar hafa 55.000 manns til viðbótar skráð sig til þátttöku á síðari stigum málsins.

Hver og einn þessara 25.000 krefst 500 evra í skaða­bætur fyrir meint brot á friðhelgi einkalífs síns. Það eru um það bil 73.500 íslenskar krónur á mann. Schrems segir í viðtalinu við AFP að málið gangi út á að grundvallar­mann­réttindi verði að virða.

„Við höfum friðhelgislög í Evrópu sem ekki er verið að fram­fylgja. Aðal­atriðið er þetta: þurfa veffyrirtæki að fylgja lögum eða búa þau í einhverskonar viltu vestri þar sem þau geta gert það sem þeim sýnist?“

Schrems stundaði nám í Kísil­dalnum þar sem stærstu nýsköpunar­fyrirtæki veraldar hafa aðal­höfuð­stöðvar sínar, þar á meðal Facebook. Hann segir nálgun flestra í Kísil­dalnum þá að hægt sé að gera það sem maður vill í Evrópu án þess að þurfa að gjalda þess.

Auk þess að reka málið fyrir dóms­stólum hefur hópur Schrems kvartað formlega undan Facebook á Írlandi. Málið hefur nú verið sent áfram til Evrópu­dómstólsins vegna þess að írsk yfirvöld hafa ekki viljað hefja rannsókn á meintum brotum gegn friðhelgi einkalífs fólks.

Niður­stöðu úr þeim málum er að vænta á næsta ári og gætu hugsanlega haft víðtæk áhrif á starfsemi bandarískra tækni­fyrirtækja í Evrópu.

Evrópa hefur verið eitt helsta vígi aðgerðar­sinna gegn stórum bandarískum vefrisum. Skemmst er að minnast dóms­úrskurðar í Evrópu um að allir eigi rétt á að gleymast á vefnum. Google neyddist í kjölfarið til að eyða upplýsingum um einstaklinga úr skrám sínum ef þeir óska eftir því, að ákveðnum forsendum uppfylltum.

Microsoft hlaut jafnframt útreið í Evrópu þegar evrópskir dómstólar komust að þeirri niður­stöðu að tölvu­risinn hefði misnotað markaðs­ráðandi stöðu sína með því að meina fram­leiðendum annarra vefvafra aðgangi að Windows-stýri­kerfinu. Í kjölfarið spruttu fjölmargir vafrar sem vefverjar geta notað til viðbótar við Explorer-vafra Microsoft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár