Sænskt fyrirtæki ætlar að bjarga fjölmiðlunum með því að leysa greiðsluvanda þeirra

Sænska greiðslu­fyrirtækið Klarna telur sig hafa fundið upp tól sem hjálpi fjöl­miðlum, sem háð hafa mikla varnar­baráttu fyrir tilveru sinni á undan­förnum árum vegna lægri tekna og sífellt minnkandi notkunar á hefð­bundum fjöl­miðlum á borð við dagblöð, að færa sig yfir á hið stafræna form án þess að tapa sölu- eða áskriftar­tekjum. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Helsta vara Klarna er greiðslu­hnappur sem hver sem er getur sett á síðuna sína. Kaupendur þurfa einungis að ýta á hnappinn, setja inn tölvu­póstfang og póstnúmer, og þá geta þeir keypt vöruna sem þeir vilja eignast með einu klikki. Kaup­andinn fær síðar tölvupóst frá Klarna þar sem hann er beðinn um greiðslu­upplýsingar.

Klarna man síðan eftir tölvunni þinni, snjall­símanum eða töflunni sem þýðir að einungis þarf að fylla út upplýsingarnar einu sinni. Í næsta skipti sem keypt er vara þá nægir að ýta einu sinni á hnappinn til að ljúka kaupunum.

Vakið mikla athygli fjárfesta


Þessi hug­mynd Klarna, fyr­ir­tækis sem var stofnað 2005, hefur þegar vakið mikla athygli fjár­festa. Fyr­ir­tæk­inu hefur tek­ist að safna um millj­arði dala, um 132 millj­örðum króna, í hlutafé. Á meðal fjár­festa er hinn frægi fjár­fest­inga­sjóður Seqoia Capital, sem fjár­magn­aði meðal ann­ars PayPal á tíunda ára­tugnum og á hlut í hinu íslenska Plain Vanilla.

Í dag fer um 30 prósent af öllum netgreiðslum innan Svíþjóðar í gegnum Klarna. Í fyrra voru um níu milljarðar dalir, um 1.200 milljarðar króna, greiddir í gegnum þjónustu fyrir­tækisins.

Þótt Klarna hafi fyrst og síðast þjónustað verslun á netinu fram til þessa telja stjórn­endur fyrir­tækisins að þjónustan þeirra geti líka gagnast fjölmiðla­geiranum til að endur­heimta möguleikan á því að rukka fyrir efni.

Klarna og Bonnier AB, stærsta fjölmiðla­fyrirtæki Norður­landa, hafa hafið samstarf með það fyrir augum að bjóða lesendum netmiðla upp á auðveldari og einfaldari leiðir til að nálgast greinar.

Niklas Adalberth, annar stofnenda Klarna, sagði við Business Insider að í dag séu allir í fjölmiðla­geiranum að reyna að neyða lesendur inn í flókin áskriftar­kerfi. Það sé ekki það sem fólk vill.

Hjálpa til við að bjarga fjölmiðlageiranum


Sem stendur geta les­endur sem fara inn á valdar net­síður á vegum Bonnier AB borgað eina evru, 148 krónur, fyrir svo­kall­aðan „dag­passa“ sem veitir þeim aðgang að öllum greinum. Bráðlega verður einnig hægt að kaupa stakar greinar fyrir lágar upp­hæðir.

Klarna og Bonnier eru ekki fyrstu fyrir­tækin sem fara í samstarf við að reyna að leysa greiðslu­vandamál fjölmiðla­geirans. The New York Times, Wall Street Journal og The Washington Post hafa öll farið í samstarf með hollensku fyrirtæki sem heitir Blendle um að bjóða upp á örgreiðslur fyrir aðgang að greinum.

Adelbreth telur hins vegar að tækni Klarna sé betri. Ástæðan sé sú að lesendur þurfa hvorki að ná sér í app né skrá sig áður en það fær aðgang að greinunum.

Til stendur að lausnin verði sett í loftið á öllum síðum á vegum Bonnier AB sem vilji er fyrir að rukka um aðgang að í júní. Í fram­haldinu ætlar Klarna að kynna tækni sína fyrir öðrum fjölmiðla­fyrirtækjum víðsvegar um heiminn.

Adelbreth telur að lausn Klarna sé frábær. „Allir sem við kynnum hana fyrir segja, „Vá, þið eruð að hjálpa til við að bjarga fjölmiðla­geiranum“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár