Sjö þúsund mótmæltu: Segja ríkisstjórnina hafa lítilsvirt lýðræðið og eigi að segja af sér tafarlaust

Um sjö þúsund manns mættu á Austur­völl í dag til að mótmæla ákvörðun ríkis­stjórnarinnar um að slíta aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið. Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sendi bréf þess efnis til sambandsins síðastliðinn fimmtudag. Ákvörðunin var ekki tekin fyrir á Alþingi né borin undir utan­ríkismála­nefnd.

Í yfir­lýsingu sem skipuleggjendur fundarins sendu frá sér segir:

"Ríkis­stjórn Íslands lætur sér vestrænar lýðræðis­hefðir í léttu rúmi liggja þegar kemur að málum sem hún er á móti. Ráðherrar hennar víla ekki fyrir sér að svíkja kosninga­loforð og þegar þeir eru minntir á eigin orð kemur ekkert af viti á móti, engin rök, ekkert málefnalegt, engin samræða, heldur full­yrðingar um að þeir hafi lýðræðis­legan rétt til að gera hvað sem þeim sýnist.

Síðasta útspil ríkis­stjórnarinnar endur­speglar gerræðis­lega stjórnar­hætti. Það er á okkar ábyrgð, borgara þessa lands, að svara fullum hálsi og stöðva þessa þróun áður en hún leiðir okkur til stjórnar­hátta sem engum hugnast, nema þeim sem sitja á valda­stólum.

Ríkis­stjórn Íslands hefur lítilsvirt lýðræðið í landinu og ber því tafar­laust að segja af sér. Hingað og ekki lengra!"

Um sjö þúsund manns mættu á mótmælin sem fram fóru á Austur­velli í dag. EPA/ANTON BRINK

Önnur mótmælin í þessari lotu


Þetta voru önnur mót­mælin vegna ákvörð­unar rík­is­stjórn­ar­innar. Þau fyrri fóru fram á fimmtu­dags­kvöldið, um tveimur klukku­tímum eftir að til­kynnt var um ákvörð­un­ina. Þá mættu rúm­lega 200 manns og því ljóst að mót­mælin sem fóru fram í dag voru mun stærri í sniðum.

Um sjö þúsund manns mættu á mótmælin sem fram fóru á Austurvelli í dag.
Um sjö þús­und manns mættu á mót­mælin sem fram fóru á Aust­ur­velli í dag.

Þau Illugi Jökulsson rit­höf­und­ur, Jóna Sól­veig El­ín­ar­dótt­ir alþjóða­stjórn­mála­fræðing­ur, Jór­unn Frí­manns­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi og Guðrún Pét­urs­dótt­ir lífeðlis­fræðing­ur fluttu ávarp á mót­mæla­fund­in­um, sem stýrt var af Sif Trausta­dótt­ur. KK og Hemúlinn sáu síðan um tónlistar­atriði.

Mótmælendur voru á öllum aldri. EPA/ANTON BRINK

_ABH7971 (1)
_ABH7971 (1)

 

Mikil mótmæli í fyrra


Mótmælin nú minna um margt á ástandið á Aust­ur­velli fyrir um ári síðan. Nokkur þús­und manns mót­mæltu nokkrar helgar í röð í febr­úar og mars á síð­asta ári í kjöl­far þess að Gunnar Bragi lagði fram til­lögu um að slíta við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið. Frum­varpið var lagt fram í kjöl­far birt­ingar skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands gerði um við­ræð­urnar. Samkvæmt henni voru veru­lega litlar líkur á því að Ísland geti fengið undan­þágur frá grunn­reglu­verki ESB. Skömmu síðar kom út skýrsla Alþjóða­stofn­unar Háskóla Íslands sem sýndi allt aðra nið­ur­stöðu og sagði að Ísland hefði þegar náð fram ýmis konar und­an­þágum.

Skipuleggjendur mótmælendanna, og margir þátt­takendanna í þeim, töldu að stjórnar­flokkarnir tveir, Sjálfstæðis­flokkur og Framsóknar­flokkur, hefðu lofað því fyrir síðustu kosningar að slíta ekki viðræðum við ESB nema að undan­genginni þjóðaratkvæðargreiðslu um málið.

Að endingu var tillagan svæfð í nefnd. Gunnar Bragi sagði í sjónvarps­viðtali í gær að þingið hefði tekið tillöguna í gíslingu og því hefði hann ekki viljað fara þá leið að leggja slíka fram á ný.

Fjórar ræður voru fluttar á mótmælunum. Í yfir­lýsingu frá skipuleggjendum þeirra sagði: „Ríkis­stjórn Íslands hefur lítilsvirt lýðræðið í landinu og ber því tafar­laust að segja af sér. Hingað og ekki lengra!" EPA/ANTON BRINK

Meirihluti landsmanna vill ekki slíta viðræðum


Meiri­hluti lands­manna vill ekki að aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu verði dregin til baka, sam­kvæmt nýlegri könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland. 35,7 pró­sent vilja að umsóknin verði dregin til baka en 11,1 pró­sent sögð­ust hvorki vera fylgj­andi né and­vígir.

Fjórar ræður voru fluttar á mótmælunum. Í yfirlýsingu frá skipuleggjendum þeirra sagði: „Ríkisstjórn Íslands hefur lítilsvirt lýðræðið í landinu og ber því tafarlaust að segja af sér. Hingað og ekki lengra!"
Fjórar ræður voru fluttar á mót­mæl­unum. Í yfir­lýs­ingu frá skipu­leggj­endum þeirra sagði: „Rík­is­stjórn Íslands hefur lít­ils­virt lýð­ræðið í land­inu og ber því taf­ar­laust að segja af sér. Hingað og ekki lengra!"

Samkvæmt könnun Capacent Gallup hafa heldur aldrei fleiri verið hlynntir því að Ísland verði aðili að sambandinu en nú, eða 46,2 prósent. Tæp 54 prósent svarenda voru andvígir aðild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár