Fordæma ritskoðunartilburði fordómafulls ráðherra í Færeyjum

Evrópskir, grænlenskir og danskir kvikmynda­gerðarmenn fordæma framgöngu færeyska menntamála­ráðherrans Jenisar av Rana. Ráðherrann aftur­kallaði styrk sem þegar var búið að veita færeyskri kvikmynd, að því er virðist vegna persónulegra skoðana sinna á því að hún bryti gegn velsæmi.

Sagður stunda pólitíska ritskoðun
Sagður stunda póli­tíska rit­skoðun Jenis av Rana hefur áður kom­ist í frétt­irnar fyrir for­pok­aðar skoð­anir sínar. Mynd: Johannes Janson

Félag evrópskra kvikmynda­leikstjóra hefur, ásamt félagi grænlenskra kvikmynda­gerðarmanna, samtökum lista­manna í Danmörku og félagi danskra kvikmynda­leikstjóra, sent sameiginlega yfir­lýsingu til utanríkis- og menntamála­ráðuneytis Færeyja þar sem ritskoðunar­tilburðum ráðherrans Jenis av Rana er harðlega mótmælt.

Í yfir­lýsingunni segir að ráðherrann hafi nú í tvígang aftur­kallað stuðning til kvikmynda, sem færeyski kvikmynda­sjóðurinn hafði áður samþykkt að veita styrk. Það hafi gerst í desember síðastliðnum þegar hann hafi neitað að styrkja gerð teiknimyndarinnar Skúla Scam og svo aftur nú. Í þetta skipti hafi Jenis av Rana neitað stuðningi við gerð kvik­myndarinnar Sælu eftir leik­stjórann Katrin Joensen-Næs. Viðfangs­efni kvik­myndarinnar er kynlífs­fíkn kvenna.

„Við erum hneyksluð yfir því að þetta gerist á nýjan leik því hér er um að ræða aðför að listrænu frelsi. Einkum á það við þegar höfnun á stuðningi byggist á persónulegri túlkun ráðherrans á velsæmi,“ segir í yfir­lýsingunni.

Þar segir enn fremur að lýst sé fullum stuðningi við færeyskt kvikmyndar­gerðarfólk og kallað eftir því að stuðningur við listir fái vernd gegn pólitískri ritskoðun. Endur­tekin afskipti stjórn­málamanna komi í veg fyrir samstarf færeyskra kvikmynda­gerðarmanna við erlenda aðila.

Jenis av Rana er formaður Miðflokksins í Færeyjum, sem meðal annars leggur áherslu á kristileg gildi og hefur barist gegn réttindum hinsegin fólks. Jenis av Rana hefur áður vakið athygli fyrir fordóma­fullar skoðanir sínar, byggðar á hans kristilegu heimsýn. Þannig neitaði hann að árið 2010 að sitja kvöldverðarboð lögmanns Færeyja árið 2012 sem haldið var til heiðurs Jóhönnu Sigurðar­dóttur, þáverandi forsætis­ráðherra, og Jónínu Leós­dóttur eiginkonu hennar. Jóhanna var þá í opinberri heimsókn í Færeyjum. Lýsti Jenis av Rana því að heimsókn Jóhönnu væri hrein ögrun og ekki í samræmi við boðskap Biblíunnar. Þar af leiðandi léti hann sér ekki til hugar koma að sitja kvöldverðar­boðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár