Gagnrýnir aðstöðuleysi fyrir ungmenni í Laugardalnum

Borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins segir að ungmenni í Laugardal þurfi alvöru aðstöðu til íþrótta­iðkunar „ekki fleiri vinnuhópa eða góðar hugmyndir á blaði“.

Katrín Atla­dóttir borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins telur að ungmenni í Laugardal þurfi „alvöru aðstöðu, ekki fleiri vinnuhópa eða góðar hugmyndir á blaði“ en þetta ritar hún í aðsendri grein í Frétta­blaðinu í dag.

Bendir hún á að í meirihluta­sáttmála borgar­stjórnar sé talað um að „greina þurfi þörf fyrir aðstöðu fyrir börn og unglinga í Laugardal“. Katrín segir að það þurfti enga sérfræðinga til að greina þessa þörf, það væri auðvelt að spyrja bara foreldra í hverfinu.

„Tveir grunn­skólar í Laugardal eru án íþrótta­húss og aðrir tveir eru með of lítil og óheppileg hús. Íþrótta­félögin í Laugardal, Ármann og Þróttur, eiga ekkert hús fyrir bolta­greinar innanhúss. Hjá Ármanni, fjölmennustu körfubolta­deild Reykja­víkur, æfa fjögurhundruð börn. Þau yngstu æfa í íþrótta­húsum Langholts- og Laugar­nesskóla, þau eru á stærð við einn badminton­völl. Þessi börn spila mörg í fyrsta skipti á tvær körfur þegar þau taka þátt í mótum“, skrifar hún.

Segir brottfallið mikið þegar börn vaxi upp úr aðstöðu

Katrín segir jafnframt að Ármann geti ekki haldið mót til fjár­öflunar eins og önnur félög í borginni vegna aðstöðu­leysis. Skóla­íþrótta­húsunum sé lokað í sumar­byrjun líkt og skólunum svo tímabilið hjá Ármanns­krökkum sé styttra en hjá börnum í öðrum félögum.

„Brottfall er mikið þegar börnin vaxa upp úr þessari aðstöðu og þurfa þá að ferðast til æfinga utan hverfis. Aðstöðu­leysi Þróttar er líka alvarlegt en blakdeild Þróttar æfir á tíu stöðum á höfuð­borgar­svæðinu og erfiðlega hefur gengið að halda úti starfi í handbolta,“ skrifar hún.

Hún segir að íþróttahús sem nýtist Þrótti, Ármanni og skólunum í hverfinu hafi skorað einna hæst í forgangs­röðun íþrótta­mannvirkja í Reykjavík. „Vinnu­hópur allra hagaðila á að skila tillögum að uppbyggingu í Laugardal fyrir 1. desember. Það eru sjö mánuðir eftir af kjör­tímabilinu og lítið áþreifanlegt hefur gerst í aðstöðu­vanda Laug­dælinga. Ungmenni í Laugardal þurfa alvöru aðstöðu, ekki fleiri vinnuhópa eða góðar hugmyndir á blaði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár