Helle Thorning-Schmidt tilnefnd sem yfirmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna

Danska ríkis­stjórnin tilnefndi í morgun Helle Thorning-Schmidt, fyrrum forsætis­ráðherra landsins, sem fram­bjóðanda hennar til þess að taka við starfi yfirmanns Flóttamanna­stofnunar Sameinuðu þjóðanna. Tilkynningin kemur á óvart enda tapaði flokkur Thorning-Schmidt völdum til hægri-blokkarinnar í dönskum stjórn­málum eftir kosningar sem fram fóru fyrr á þessu ári. Lars Løkke Rasmussen, formaður Venstre-flokksins, myndaði í kjölfarið minnihluta­stjórn.

Thorning-Schmidt sagði af sér formennsku í danska jafnaðar­manna­flokknum í kjölfar kosninganna. Lars Løkke Rasmussen bauð þennan fyrrum andstæðing sinn síðan fram sem fram­bjóðanda danskra stjórn­valda í stöðu yfirmanns Flóttamanna­stofnunar Sameinuðu þjóðanna á blaðamanna­fundi í morgun. Frá þessu er greint á vef Berlinske tidende. Þar segir forsætis­ráðherrann að hann muni gera allt sem í valdi hans stendur til að tryggja Thorning-Schmidt stöðuna og að hann muni leita eftir stuðningi annarra Evrópu­ríkja við tilnefningu hennar.

Nýr yfirmaður mun taka við starfinu 1. janúar 2016 en það ætti að liggja fyrir síðar í haust hver mun fá það. Ban Ki-Moon, aðal­ritari Sameinuðu þjóðanna, mun taka þá ákvörðun. "Ég vona að hann velji réttu konuna í starfið," sagði Løkke Rasmussen á blaðamanna­fundinum í morgun.

Takist að tryggja Thorning-Schmidt starfið yrði það í annað sinn sem danskur stjórn­málamaður myndi gegna því. Poul Hartling, sem var formaður Venstre og forsætis­ráðherra Danmerkur á áttunda áratugnum, tók við starfinu árið 1977 og hlaut friðar­verðlaun Nóbels fyrir starf sitt fyrir flótta­menn árið 1981.

Ljóst er að mikið mun mæða á þeim sem hreppir starf yfirmanns Flóttamanna­stofnunar Sameinuðu þjóðanna, enda stendur heimurinn frammi fyrir mesta flóttamanna­vanda sínum síðan í síðari heim­styrjöldinni. Talið er að um 60 milljónir manna hafi flúið heimili sín víðsvegar um heiminn og stór hluti þess hóps hefst við í flóttamanna­búðum. Hlutverk stofnunarinnar er að veita flótta­mönnum heimsins vernd og aðstoð. Hún var sett á laggirnar árið 1951 og höfuð­stöðvar hennar eru í Genf í Sviss. Upphaf­lega var tilgangur stofnunarinnar að aðstoða flótta­menn í Evrópu eftir síðari heim­styrjöldina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár