Starfinu ekki lokið nema með tillögugerð

Sigrún Júlíusdóttir, sem var í vistheimila­nefnd, segist telja eðlilegt að rann­sókninni á Varpholti og Lauga­landi lyki með tillögum að aðgerðum. Og að það hefði átt að bjóða konum sem þar voru vistaðar sálfræði­aðstoð.

Í lögum um vistheimila­nefnd sagði meðal annars um hlutverk nefndarinnar: „Nefndin skuli leggja grundvöll að tillögum til stjórn­valda um frekari viðbrögð ef ástæða þyki til.“ Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félags­ráðgjöf við Háskóla Íslands, var ein nefndar­manna í vistheimila­nefnd og segir hún að aldrei hafi annað komið til greina en að túlka þá klásúlu laganna með þeim hætti að nefndin myndi leggja fram tillögur um hugsanlegar fébætur, um áfram­haldandi sálfræði­þjónustu, um mat á framkvæmd barna­verndar­laga á þeim tíma sem þá var undir og síðan um áfram­haldandi vinnu nefndarinnar. Það hafi nefndin enda gert.

Í skipunar­bréfi Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála um rannsókn á starfsemi Varpholts og Lauga­lands sagði: „Niður­staða stofnunarinnar verði eftir atvikum grund­völlur að frekari viðbrögðum stjórn­valda.“ Orðalag sem er áþekkt en þó ekki eins og orðalagið í lögunum um vistheimila­nefnd. Engu að síður var það niður­staða Gæða- og eftirlits­stofnunar að ekki ætti að gera tillögur að aðgerðum í loka­skýrslu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laugaland/Varpholt

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á meðferðar­heimilinu í Varpholti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerfis­bundnu andlegu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt líkamlegu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til forstöðu­hjóna heimilisins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­verndar­yfirvalda sem brugðust þeim.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár