Erlendir blaðamenn borga fimmföld árslaun íbúa Norður-Kóreu

Þeir erlendu blaðamenn sem fá að flytja fréttir frá Norður-Kóreu eru látnir borga háar fjárhæðir.

Gengi á svartamarkaði í Norður-Kóreru sveiflast í takt við tilraunasprengingar hersins. Erlendir fjölmiðlar ferðuðust til Norður-Kóreu til þess að fylgjast með hersýningu hersins þar í landi.
Gengi á svarta­mark­aði í Norður-Kóreru sveifl­ast í takt við til­rauna­spreng­ingar hers­ins. Erlendir fjöl­miðlar ferð­uð­ust til Norður-Kóreu til þess að fylgj­ast með her­sýn­ingu hers­ins þar í landi. Mynd: EPA

Persónu­legur kostnaður blaða­manns Reuters í vinnuferð til Norður-Kóreu á dögunum nam um 2.500 Bandaríkja­dölum, eða því sem sem samsvarar fimm ára meðal­launum í Norður-Kóreu. Upphæðin nemur hátt í 300 þúsund íslenskum krónum.

Blaða­maðurinn Sue-Lin Wong var í hópi 121 blaða­manna sem voru staddir í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, fyrir rúmri viku. Blaða­mönnunum var boðið að fylgjast með skipulögðum hátíðar­höldum sem haldin voru vegna fæðingar­afmælis Kim Il-sung.

Ef dollararnir sem Wong greiddi er reiknuð á svartamarkaðs­gengi norður-kóreska gjald­miðilsins won nemur fjárhæðin hins vegar launum meðal Norður-Kóreu búa í um 420 ár.

Öll viðskipti blaða­mannanna fóru fram á genginu 100 norður-kóresk won á hvern dollar. Heima­maður í Norður-Kóreu tjáði Wong að svartamarkaðs­gengið á dollaranum væri mikið hærra; einhvers staðar á bilinu 8.400 og 8.300 won á hvern dollar og að gengið sveiflaðist til eftir því hversu langt væri liðið frá síðustu kjarnorku­tilraun.

Kóreuskagi á suðupunkti

Norður-kóreski herinn stóð fyrir umfangs­mikilli heræfingu í dag. Á sama tíma komu bandarískir kafbátar að höfn í Suður-Kóreu. Reuters greinir einnig frá þessu. Bandaríkjaher hefur aukið vígbúnað sinn á Kóreu­skaganum vegna gruns um að her Norður-Kóreu myndi standa fyrir kjarnorku­tilraun í tilefni afmælis norður-kóreska hersins. Engar tilraunar­sprengingar hafa verið gerðar en skotið var úr lang­drægum fall­byssum í æfingar­skyni í Wonsan-héraði. Þar er flug­herstöðin sem langdræg flug­skeyti hafa verið prófuð.

Eins og komið hefur fram í umfjöllun Kjarnans hefur tilraunum Norður-Kóreu með langdræg flug­skeyti fjölgað á undan­förnum mánuðum. Nágrannar þeirra í Japan og Suður-Kóreu hafa fordæmt tilraunirnar harðlega og krafist aðgerða af hálfu Sameinuðu þjóðanna og alþjóða­samfélagsins. Donald J. Trump, forseti Banda­ríkjanna, hefur boðað alla þingmenn öldungardeildarinna til fundar í Hvíta húsinu á morgun, miðvikudag, þar sem fara á yfir þróun mála á Kóreu­skaga.

Í yfir­lýsingum Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu, segir að öllum hernaðar­tilburðum Bandaríkja­hers verði mætt af hörku og við minnstu tilraun til árásar muni stríð brjótast út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár