Ísfélagið dæmt til að greiða svikin laun vegna Namibíuverkefnis

Ísfé­lagið hf. í Vest­manna­eyjum var á dög­unum dæmt til að greiða Þorgeiri Pálssyni, núver­andi sveit­ar­stjóra Stranda­byggðar, tæp­lega þrjár millj­ónir króna í van­greidd laun. Ísfé­lagið sagt hafa svikið sam­komu­lag við Þorgeir sem fært hafði fyr­ir­tæk­inu við­skipta­tæki­færi í hrossa­makríls­út­gerð í Namibíu árið 2017.

2-0 gegn Ísfélaginu
2-0 gegn Ísfé­lag­inu Þorgeir Pálsson hefur nú í tvígang haft sigur gegn Ísfé­lag­inu hf fyrir dómi. Krafan sem hann fékk við­ur­kennda og dæmda, er þó ekki nema bort af þeim kostn­aði sem Ísfé­lagið heufr sjálft lagt í mála­ferlin. Mynd: Stundin / Davíð Þór

„Ég er gríð­ar­lega sáttur en fyrst og fremst feg­inn að þessu sé loks­ins að ljúka,“ sagði Þorgeir Pálsson í sam­tali við Heim­ild­ina eftir að ljóst var að Lands­réttur hafði stað­fest dóm hér­aðs­dóms um að Ísfé­lagið í Vest­manna­eyjum skyldi greiða honum 3 millj­ónir króna í van­goldin laun.

Málið snýst um við­skipta­tæki­færi sem Þorgeir hafði milli­göngu um að kynna fyrir for­svars­mönnum Ísfé­lag­isns árið 2017. Tilboð um aðgang að verð­mætum kvóta í Namibíu sem Ísfé­lagið gæti nýtt sér. Þorgeir, sem hafði starfað í Namibíu á vegum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og síðar verið feng­inn til að vinna rekstr­ar­á­ætlun fyrir hugs­an­legt sam­starf Samherja og rík­is­út­gerð­ar­innar namibísku, hafði kom­ist í kynni við athafna­menn í Namibíu sem höfðu yfir að ráða hrossa­makríl­skvóta. Tilboð sem Þorgeir kynnti fyrir stór­út­gerð­inni í Vest­manna­eyjum sem sam­þykkti að kanna málið frekar og hand­sal­aði um það samn­ing við Þorgeir. Þegar kom til þess að fara utan til Namibíu, fékk Þorgeir hins vegar skyndi­lega meld­ingu …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Ég veit ekkert hversu rétt mál Helgi Seljan fer með í þessari grein, sem farið hefur í efnisflokkinn "Fréttir" hjá Heimildinni. En veit þó að þessi setning hlýtur að vera röng:

    "Þorgeir var vegna þessara starfa sinna kallaður til sem vitni í rannsókn Héraðssaksóknara á mútubrotum 9 núverandi og fyrrverandi Samherjamanna hér á landi." því að þarna hlýtur að vera um meint mútubrot að ræða, þar sem engir dómar hafa fallið enn.

    Ég minni á að ég komst á blað hjá Stundinni sálugu, öðrum af 2 undanförnum Heimildarinnar, fyrir nærri 3 árum vegna þess að ég véfengdi þá að rétt væri að Helgi Seljan dæmdi í málum og taldi réttara að dómstólar sæju um það. Og fékk læk á þá rökleiðslu mína frá gömlum skólabróður (ég skil enn ekki hvernig nokkrum getur mislíkað að dómarar dæmi í málum, frekar en fréttamenn). Eftir þetta hefur lítið gerst í mínu lífi sem blaðamenn Heimildarinnar eða undanfara hennar hafa talið til tíðinda. Helst kannski talið fréttaefni að nafn mitt hafi borið á góma í einkaskilaboðum milli tveggja Norðlendinga, sem einhvern veginn römbuðu í fréttir hjá Stundinni.

    En varðandi þessa grein Helga sem hér er kommentað á: án þess að ég ætli að álykta neitt meira um áreiðanleika bloggs Páls Vilhjálmssonar en um skrif Helga, þá kann að vera að nýjasta blogg Páls varpi frekara ljósi á greinHelga. Hér er hlekkur á nýjasta bloggið: https://pallvil.blog.is/blog/pall_vilhjalmsson/entry/2295773/
    0
  • MGÁ
    Marteinn Gísli Árnason skrifaði
    Sæskimsli er retta orðið yfir þetta hyski e.t.v. getur Kristjan i Hval gert ut a
    þessi skrimsli og geymt i frystigamum og hætt þessu hvala busli sem er bara hans "hobby".
    Það er illmögulegt að eiga við þessi skrimsli eg vil oska Þorgeiri til hamingju.
    1
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Sjávarútvegurinn með sægreifa í broddi fylkingar ber öll merki ógnarstjórnar, þ.e. mafíustarfsemi.

    "Málareksturinn tafðist von úr viti, enda tók það dómara í héraði heilar 23 tilraunir að finna sérhæfðan matsmann til að meta meint tjón Þorgeirs. Það er að sögn kunnugra fáheyrt að svo illa gangi að fá einhvern til slíkra verka. Þorgeir lýsti því í viðtali fyrir rúmu ári að ástæðan sem álitlegir matsmenn hafi gefið hafi verið sú að þeir vildu ekki styggja stórfyrirtækið Ísfélagið. "
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár