Sá einstaki fallinn frá

David Bowie er einn allra áhrifa­mesti lista­maður sögunnar og hreyfði við fólki með hugrekki sínu og hæfi­leikum. Hans er minnst sem „snillings“ sem hafi rutt brautina fyrir aðra.

Breski tónlistar­maðurinn David Bowie féll frá í gær, 69 ára að aldri, en bana­meinið var krabba­mein. Hann veiktist fyrir átján mánuðum. Nýjasta plata hans, Blackstar, kom út á afmælis­daginn hans, 8.janúar síðastliðinn. Hann sendi frá sér um 30 hljóðvers­plötur á ferlinum.

Bowie er í dag minnst sem eins áhrifa­mesta lista­manns sem komið hefur fram. Hann er einn fárra lista­manna sem á tæplega 50 ára löngum ferli tókst á við ólíka strauma og stefnur í tónlistinni, og sagði sögur með lögum sínum sem hreyfðu við fólki á öllum aldri.

Listamenn minnast hans með miklum hlýhug. Madonna lýsir honum sem „einstökum snillingi“ sem hafi breytt sögunni með list sinni. Sama er uppi á teningnum hjá fjölmörgum öðrum, sem segja Bowie hafa þrifist á áskorunum og rutt brautina fyrir aðra með hugmynda­auðgi og nýsköpun sem ekki eigi sér neina hliðstæðu í tónlistar­sögunni.

Bandaríski tónlistar­maðurinn Kanye West segir Bowie hafa verið leiðar­ljós fyrir aðra með „óttaleysi“ og frumleigheitum, og ýmsir svartir tónlistar­menn, þar á meðal rapparinn MC Hammer, þakka honum fyrir að standa með svörtum tónlistar­mönnum í gegnum tíðina, þegar þeir hafa mætt misrétti af einhverju tagi. Það gerði Bowie meðal annars á áttunda áratugnum þegar MTV sjónvarps­stöðin þótti sniðganga áhrifa­mikla svarta tónlistar­menn.

Enginn mun stíga í sporin sem Bowie skilur eftir sig, en lög hans lifa og halda áfram að gleðja fólk og veita því innblástur um ókomna tíð.

Það er táknrænt fyrir hans miklu áhrif á ótrúlegum og litríkum ferli, að þegar hann féll frá, þá hljómuðu lög hans í nær öllum búðum í Suður-London, við Brixton, þar sem hann var fæddur og uppalinn. Það sama átti við um mörg önnur hverfi í ýmsum borgum og bæjum Bretlands. Í Brighton hefur tónlist hans verið sérstak­lega áberandi í allan dag, þar sem fallin „hetja“ er hyllt.

Allt frá því að hann fangaði heiminn með fyrsta vinsæla lagi sínu, meistara­verkinu Space Oddity, var ljóst að þarna voru nýir straumar á ferðinni sem tónlistar­heimurinn hafði ekki fundið fyrir áður. Það reyndist bara byrjunin á einstökum ferli.

Bowie lést umkringdur vinum og fjöl­skyldu á Manhattan í New York, þar sem hann bjó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár