Bandaríska hagkerfið á batavegi - 223 þúsund ný störf í apríl

Samtals urðu til 223 þúsund ný störf í apríl­mánuði í Bana­ríkjunum, sem er meira en tvölfalt meira en raunin var í mars en þá urðu til 85 þúsund störf, samkvæmt tölum frá vinnumála­stofnun Banda­ríkjanna sem breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til í umfjöllun sinni.

Atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum mælist nú 5,4 prósent og lækkaði um 0,1 prósentu­stig frá því í mars. Atvinnu­leysi hefur ekki verið minna í Banda­ríkjunum í sjö ár, en um tíma fór það yfir tólf prósent, eftir hremmingarnar á fjármála­mörkuðum á árunum 2007 til 2009.

Þrátt fyrir að atvinnu­leysi fari minnkandi, og að ný störf séu að verða til, þá eru batinn viðkvæmur en hagvöxtur mældist 0,2 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem var töluvert undir spám. Seðla­banki Banda­ríkjanna, undir stjórn banka­stjórans Janet Yellen, hefur boðað að vaxta­hækkunar­ferli gæti hafist síðar á þessu ári, ef aðstæður verða metnar þannig að slíkt skref sé rétt, en stýri­vöxtum bankans hefur verið haldi við núllið árum saman, ekki síst með það að markmiði að örva hagvöxt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár