Fyrrverandi yngstur á þingi ráðinn aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar

Bjarni Halldór Janusson hefur tekið til starfa sem nýr aðstoðar­maður Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur formanns Viðreisnar.

Bjarni Halldór Janusson er nýr aðstoðarmaður formanns Viðreisnar.
Bjarni Halldór Janusson er nýr aðstoð­ar­maður for­manns Við­reisnar. Mynd: Aðsend

Bjarni Halldór Janusson, stjórnmála­fræðingur og fyrrum vara­þingmaður, hefur tekið til starfa sem nýr aðstoðar­maður Þorgerðar Katrínar Gunnars­dóttur, þingmanns og formanns Viðreisnar. Frá þessu er greint í tilkynningu frá flokknum.

Bjarni hefur tekið þátt í starfi Viðreisnar frá árinu 2014 og var meðal fyrstu stofnenda flokksins og fyrsti forseti ungliða­hreyfingar Viðreisnar. Bjarni hlaut kjör sem vara­þingmaður flokksins í Suðvestur­kjördæmi árið 2016 og tók sæti á þingi í tvígang árið 2017 og varð þá yngsti sitjandi þingmaður frá upphafi, en það met hefur síðan verið slegið.

Bjarni er með prófgráðu í stjórnmála­fræði frá Háskóla Íslands, diplómu á meistara­stigi til kennslu­réttinda frá sama skóla og hefur einnig lokið meistara­námi í stjórnmála­heimspeki frá Háskólanum í York í Bretlandi.

Bjarni starfaði áður í byggingar­iðnaði sem fjármála- og skrif­stofustjóri hjá pípulagna­verktaka og einnig við borgara­lega fermingar­fræðslu í auka­verkum. Hann segist spenntur fyrir komandi tímum og er þakklátur fyrir að snúa aftur til starfa á vettvangi stjórn­mála.

„Það eru ákveðin forréttindi að geta starfað við það sem ég hef ástríðu fyrir. Ég hlakka til komandi tíma og þó að starfið sé krefjandi er það ekki vandamál þegar áhuginn mun nýtast mér sem góður drif­kraftur,“ er haft eftir Bjarna í tilkynningu frá Viðreisn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár