Emirates kaupir vélar af Rolls Royce fyrir 6 milljarða punda

Flug­félagið Emirates hefur ákveðið að kaupa 50 vélar fyrir flugvélar frá véla­fram­leiðandanum breska Rolls Royce fyrir samtals um sex milljarða punda, eða sem nemur um 1.218 milljörðum íslenskra króna. Þetta er stærsta pöntun sem Rolls Royce hefur móttekið frá stofnun fyrir­tækisins, samkvæmt upplýsingum breska ríkis­útvarpsins BBC.

Rolls Royce er meðal stærstu vinnu­veitendum í Bretlandi, en samtals vinna hjá félaginu 24.500 starfs­menn. Engin ný störf verða til vegna þessa samnings, en honum er samt fagnað sem kærkomnum fyrir bæði Rolls Royce og Emirates.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár