Kvikmyndafrumvarp um endurgreiðslur „augljóslega gallað“

Formaður Mið­flokks­ins segir kvik­mynda­frum­varp menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra „aug­ljós­lega gallað“. Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir athuga­semdir sem ráðu­neytið gerði við frum­varpið ekki efn­is­legar, heldur snúi þær að fjár­laga­liðnum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, út í athuga­semdir ráðu­neyt­is­ins við frum­varp Lilju Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Í minn­is­blaði frá efna­hags- og fjár­mála­ráðu­neyt­inu, sem fjallað var um á fundi atvinnu­vega­nefndar í gær og Kjarninn hefur undir höndum, er það gagn­rýnt að frum­varpið sé ófjár­magnað og að skortur hafi verið á sam­ráði við samn­ingu þess. Í minn­is­blað­inu er bent á kostn­að­ar­á­hrif frum­varps­ins, um ófjár­magnað frum­varp sé að ræða og fjár­heim­ildir séu því ekki til staðar til að næta þeim kostn­að­ar­auka sem frum­varpið hefur í för með sér.

Lilja kynnti drög að end­ur­skoðun laga um end­ur­greiðslur vegna vegna kvik­mynda­gerðar á Íslandi í byrjun maí en í því er lagt til að kvik­mynda­verk­efni sem upp­fylla ákveðin skil­yrði og telj­ast stærri verk­efni og til lengri tíma njóti 35 pró­sent end­ur­greiðslu af fram­leiðslu­kostn­aði í stað 25 pró­sent. Frum­varpið var afgreitt úr rík­is­stjórn um miðjan maí. Í lok maí greindi Vísir frá því að næsta þátta­röð af True Detective verði tekin upp hér á landi. Verk­efnið mun, að öllum lík­indum, falla undir skil­yrði frum­varps­ins um hærra end­ur­greiðslu­hlut­fall.

Vanfjármagnað og „raunar ófjármagnað frumvarp“

Sig­mundur Davíð spurði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra út í minn­is­blað ráðu­neyt­is­ins þar sem kemur meðal ann­ars fram, að sögn Sig­mundar, að málið sé van­fjár­magnað og í raun ófjár­magnað.

Sig­mundur Davíð benti á að fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi gert athuga­semdir við að hafa aðeins fengið þrjá daga til að fara yfir frum­varpið og eins að starfs­hópur sem átti að vinna þetta frum­varp hafi ekki fengið að vinna það heldur hafi það bara verið klárað í menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu.

„Því er jafn­framt haldið fram að þetta mál hafi verið afgreitt úr rík­is­stjórn,“ sagði Sig­mundur Davíð, sem spurði Bjarna hvort ekki hafi verið gerðar athuga­semdir við það á sínum tíma í rík­is­stjórn­inni. Þá sagði hann það nokkuð óvenju­legt að mál að þessu tagi komi upp svona seint og að ráðu­neytið telji sig þurfa að grípa inn í vegna stjórn­ar­frum­varps, sem hann telur að sé ekki annað að skilja en að hér sé um stjórn­ar­frum­varp að ræða.

Í engum vafa um að fjárlagaliðurinn er ófullnægjandi

Bjarni benti á að á und­an­förnum árum hafi verk­lagi við kosn­t­að­ar­mat frum­varpa verið gjör­breytt og að nú beri fagráðu­neytin sjálf alla ábyrgð á því að kostn­að­ar­meta mál sem fram hafa komið. Sú regla sé þó við­höfð að fjár­mála­ráðu­neytið hafi að jafn­aði tvær vikur til að fara yfir mat fagr´ðauneyta. Það hafi ekki tek­ist í til­viku kvik­mynda­frum­varps Lilju. Bjarni sagði ráðu­neytið samt sem áður hafa komið með ábend­ingar um að gjalda­lið­ur­inn gerði ekki ráð fyrir útgjöldum sem myndi reyna á ef frum­varpið yrði sam­þykkt.

„Ekki var tekið til­lit til þess í grein­ar­gerð með frum­varp­inu eins og það fór í gegnum rík­is­stjórn­ina. Þar vakti ég reyndar athygli á því,“ sagði Bjarni, sem sagði umræð­una í raun og veru snú­ast um hvort útgjalda­lið­ur­inn, sem er vistaður í menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neyt­inu, hafi nægi­legt svig­rúm til að full­nægja þeirri þörf sem mun skap­ast verði frum­varpið sam­þykkt sem lög.

„Það er eina spurn­ingin sem skiptir hér máli og fjár­mála­ráðu­neytið er bara að vekja athygli á því, er ekki með neinar efn­is­legar athuga­semdir við það mál, að útstreymi til að end­ur­greiða kvik­mynda­fram­leið­endum mun stöðvast á því að ekki verði fjár­heim­ildir á fjár­laga­liðnum. Mönnum kann að þykja þetta óeðli­legt en það getur auð­vitað gerst að það komi upp ólík sjón­ar­mið um það hvort fagráðu­neytið eða fjár­mála­ráðu­neytið hafi rétt fyrir sér. Ég er reyndar í engum vafa um að fjár­laga­lið­ur­inn er ófull­nægj­andi,“ sagði fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Sig­mundur Davíð sagði að af orðum fjár­mála­ráð­herra að dæma sé frum­varpið „aug­ljós­lega gallað“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár