Vill að stærri kvikmyndaverkefni fái 35 prósent endurgreiðslu kostnaðar

Menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra hefur kynnt fyrir rík­is­stjórn­inni drög að frum­varpi þar sem lagt er til að verk­efni sem upp­fylla ákveðin skil­yrði og telj­ast stærri verk­efni og til lengri tíma njóti 35% hlut­falls end­ur­greiðslu af fram­leiðslu­kostn­aði.

Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra kynnti fyrir rík­is­stjórn síð­ast­lið­inn föstu­dag drög að end­ur­skoðun laga um end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar á Íslandi. Þar er lagt til að afmörkuð stærri verk­efni, sem upp­fylla ákveðin skil­yrði sem fram koma í lög­unum, eigi rétt á 35 pró­sent end­ur­greiðslu af fram­leiðslu­kostn­aði.

Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Þá segir í svar­inu að mark­miðið sé að Ísland verði sam­keppn­is­hæft við nágranna­löndin sem sum hver bjóða upp á hærri end­ur­greiðslur – 35 pró­sent að ákveðnum skil­yrðum upp­fylltum – og séu breyt­ing­arnar til þess fallnar að laða að bæði stærri og lengri kvik­mynda- og sjón­varps­efni til lands­ins.

„Við vitum að það er mik­ill áhugi á þessum áformum okkar um laga­breyt­ingu á end­ur­greiðsl­unum og við höfum haft málið í algjörum for­gangi enda mikið hags­muna­mál,“ segir Lilja í svar­inu.

Lágmarks framleiðslukostnaður, verkefni til lengri tíma og fjöldi starfsmanna sem vinna að verkefninu

Drög að frum­varp­inu eru nú í sam­ráðs­gátt stjórn­valda en þar er lagt til, eins og áður segir, að verk­efni sem upp­fylla ákveðin skil­yrði og telj­ast stærri verk­efni og til lengri tíma njóti 35 pró­sent hlut­falls end­ur­greiðslu af fram­leiðslu­kostn­aði. Önnur verk­efni njóti áfram 25 pró­sent end­ur­greiðslu­hlut­falls eins og verið hefur.

Til að eiga rétt á 35 pró­sent end­ur­greiðslu þurfa öll þrjú skil­yrðin að vera upp­fyllt.

1. Lágmarks framleiðslukostnaður.

Með frum­varp­inu er lagt til að fyrsta við­miðið verði tengt við skil­greindan fram­leiðslu­kostnað sem fellur til hér á landi og heim­ilt er að draga frá tekjum af atvinnu­rekstri sam­kvæmt ákvæðum laga um tekju­skatt. Með því er skilið á milli „stærri“ og „smærri“ verk­efna, sam­an­ber áherslur úr stjórn­ar­sátt­mála. Lagt er til að við­miðið sé að fram­leiðslu­kostn­aður sem fellur til við fram­leiðslu við­kom­andi kvik­myndar eða sjón­varps­efnis hér á landi sé að lág­marki 200 m.kr.

2. Verkefni til lengri tíma á Íslandi.

Með frum­varp­inu er í öðru lagi lagt til að til að eiga rétt á 35 pró­sent end­ur­greiðslu sé gerð krafa um að fram­leiðslu­verk­efni sé til lengri tíma hér á landi þar sem töku­dagar á Íslandi eru að lág­marki 30. Heimilt er að telja eft­ir­vinnslu verk­efnis á Íslandi í þeirri tölu.

3. Fjöldi starfsmanna sem vinna að verkefni.

Með frum­varp­inu er lagt til það þriðja við­mið, til að eiga rétt á 35 pró­sent end­ur­greiðslu, að fjöldi starfs­manna sem vinna beint að verk­efn­inu séu að lág­marki 50. Nær það jafnt til inn­lendra sem erlendra starfs­manna. Er með því greint á milli „stærri“ og „smærri“ verk­efna með hlið­sjón af almennum efna­hags­legum áhrifa verk­efna.

Flýttu vinnunni við frumvarpið

Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu um málið að starfs­hópur hafi verið að störfum við end­ur­skoðun lag­anna, en verk­efni hans sé að end­ur­skoða end­ur­greiðslu­hlut­fall lag­anna og skoða útfærslur til hækk­unar, að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum. Frum­varpið sé áfram í vinnslu innan menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis í sam­ráði við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið. Upp­haf­leg áform ráðu­neyt­is­ins gerðu ráð fyrir að frum­varp þessa efnis yrði lagt fram á haust­þingi 2022. Ákveðið hefur verið að flýta vinn­unni og leggja frum­varpið fram nú á vor­þingi, segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár