Eldgosið ógnar ekki byggð eða mannvirkjum en möguleiki er á gasmengun

Eldgos hófst í Geld­ing­ar­dal við Fagra­dals­fjall á Reykja­nesskaga klukkan 20:45 í gær­kvöldi.

Mynd af gosinu í dagsbirtu sýnir að það er lítið.
Mynd af gos­inu í dags­birtu sýnir að það er lítið. Mynd: Almannavarnir

Miðað við umfangið á eld­gos­inu í Geld­ing­ar­dal við Fagra­dals­fjall, eins og það er nú, virð­ist það ekki koma til með að ógna byggð eða mann­virkjum. Þetta kemur fram á vef Veð­ur­stofu Íslands.

Þar segir hins­vegar að mögu­leiki sé á að gasmengun geti valdið óþæg­indum hjá fólki. „Gefin verður út spá um gas­dreif­ingu frá eld­gos­inu á næst­unni. Veðurspá gerir ráð fyrir nokkuð sterkum vindi og úrkomu sem mun draga úr áhrifum mögu­legrar meng­unar frá eld­stöðv­unum. Hér er hlekkur á skrán­ing­ar­síðu vegna gasmeng­unar og hvetjum við fólk til að setja inn skrán­ingu ef það telur sig verða vart við gasmengun.“

Fyrsta til­kynn­ing um gosið barst Veð­ur­stof­unni klukkan 21.40 en það er talið hafa haf­ist um klukkan 20:45.

Gosið er talið lítið og gossprungan er talin vera um 500 til 1.000 metrar að lengd. Hraunið er talið vera innan við 1 fer­kíló­metri að stærð og lítil goss­tróka­virkni er á svæð­inu.

Tæplega eitt þús­und jarð­skjálftar mæld­ust í gær, sá stærsti 3,7 að stærð kl.05:48, við Reykja­nestá. Um 160 jarð­skjálftar hafa mælst frá mið­nætti, sá stærsti 2,3 að stærð, kl. 05:01. rétt austur af Sýl­inga­fell.

Almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra og Veð­ur­stofa Íslands hafa boðað til upp­lýs­inga­fundar í dag klukkan 11 vegna goss­ins. Þar munu Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna og Kristín Jóns­dóttir frá Veð­ur­stofu Íslands fara yfir stöðu mála ásamt fleiri vís­inda­mönnum.

Frá land­­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­­nesi, síð­­­ast á árunum 1211-1240. Þeir atburð­ir eru ­kall­aðir Reykja­­nes­eld­­ar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinn­um, þar af urðu þrjú ­gos í eld­­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­eng­i. Eld­­gosin voru hraun­­gos á 1-10 kíló­­metra löngum gossprung­­um.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar flaug yfir gossvæðið í nótt. Á meðal þeirra sem voru um borð var Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

Hér að neðan má sjá mynd­band sem tekið var úr þyrl­unni af gos­inu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár