Mynd: Golli

Bjarminn frá strókunum sex

Eldgos er hafið við Fagra­dals­fjall. Ljós­mynd­ari Kjarnans var í námunda við það fyrr í kvöld.

Eld­gos hófst fyrr í kvöld við Fagra­dals­fjall. Myndin hér að ofan, sem tekin er af Golla, sýnir hvernig gosið litar him­in­inn fyrir ofan Grinda­vík. Fyrsta til­kynn­ing um gosið barst Veð­ur­stof­unni klukkan 21.40.

Sam­kvæmt því sem Víðir Reyn­is­son, deild­ar­stjóri almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði við frétta­stofu RÚV, er gosið fjarri almanna­leið en stríður straumur fólks hefur legið í átt að gos­inu í kvöld þrátt fyrir til­mæli almanna­varna til fólks að halda sig fjarri.

Miðað við fyrstu upp­lýs­ingar er sprungan um 500 metra löng, sam­kvæmt stöðu­upp­færslu Veð­ur­stof­unn­ar. Gosið er talið lítið en Veð­ur­stofan segir að á sprung­unni séu um sex strókar sem, allt að 100 metra háir. Páll Ein­ars­son jarð­fræð­ingur sagði við RÚV að hraunið væri að renna um krappan dal. „Þetta er besti staður á öllum Reykja­nesskaga fyrir hraun­gos,“ sagði Páll.

Kristín Jóns­dóttir jarð­eðl­is­fræð­ingur sagði á sama stað að miðað við þekkt gos, en það eru tæp 800 ár síðan gaus síð­ast á Reykja­nesi, væri lík­leg­ast að þetta gos verði í ein­hverja daga eða vikur. Við gosið muni slakna á kerf­inu og lík­legt að næt­urnar verði rólegri hvað skjálfta­virkni varðar.

Frá land­­námi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykja­­nesi, síð­­­ast á árunum 1211-1240. Þeir atburð­ir eru ­kall­aðir Reykja­­nes­eld­­ar. Á því tíma­bili gaus nokkrum sinn­um, þar af urðu þrjú ­gos í eld­­stöðvakerfi sem kennt er við Svarts­eng­i. Eld­­gosin voru hraun­­gos á 1-10 kíló­­metra löngum gossprung­­um.

Þyrla Landhelgisgæslunnar flýgur í nálægt við gosstöðvarnar.
Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar flýgur í nálægt við gos­s­töðv­arnar.

Reykja­nesið allt er eld­brunn­ið, eins og sagt er, og ásýnd þess ein­kenn­ist af hraun­um, gíg­um, mis­gengjum og jarð­hita. Um það liggja mót Evr­asíu- og Norð­ur­-Am­er­íkuflek­anna og gliðnun er að eiga sér stað með til­heyr­andi jarð­skjálftum oft og reglu­lega síð­ustu ár og ára­tugi.

Á Reykja­nesi er að finna fimm eld­stöðvakerfi og Fagra­dals­fjall og nágrenni er eitt þeirra. En þó að jarð­eldar hafi orðið á skag­anum frá upp­hafi Íslands­byggðar hafa þeir ekki orðið í þessu til­tekna kerfi í yfir 6.000 ár í það minnsta. Og það er það eina af kerf­unum fimm þar sem hvorki er að finna jarð­hita né sprungu­sveima. Það er lítið, um fimm kíló­metra breitt á milli Svarts­eng­is- og Krýsu­vík­ur­kerf­anna og um 15 kíló­metrar að lengd milli Keilis í norð­austri og Húsa­fjalls í suð­vestri.

Mynd tekin úr Vogum á Vatnsleysuströnd.
Mynd tekin úr Vogum á Vatns­leysu­strönd.

Sjálft Fagra­dals­fjall er skil­greint sem dyngja, eld­fjall sem mynd­ast í lang­vinnu eld­gosi, og er gíg­ur­inn nyrst í því. Það er í raun stapi, hið neðra úr bólstra­bergi, móbergs­brota­bergi og túffi (um­mynd­aðri, sam­an­lím­dri gjósku) en með hettu úr grá­grýti. Að mestu hefur það byggst upp undir ís og virð­ist ekki ólík­legt að jök­ull hafi legið að því norð­aust­an­verðu fram til þess að eld­virkni hætti.

Eldar á Reykja­nesskaga geta staðið með hléum í nokkra ára­tugi eða leng­ur. Síð­asta gos­tíma­bili lauk um miðja 13. öld. Vís­bend­ingar eru um að það hafi byrjað með eldum í Brenni­steins­fjöllum laust fyrir árið 800. Eftir þá hrinu kom um 150 ára hlé þar til eld­virkni tók sig upp aftur á 10. öld. Þar á eftir fylgdi Krýsu­vík­ur­kerfið á 12. öld. Að síð­ustu komu vest­ustu kerfi Reykja­nesskag­ans á 13. öld eftir um 30 ára gos­hlé. Þessum eldum lauk um árið 1240, eða fyrir um 780 árum. Eld­stöðvakerfin hafa því ekki verið virk sam­tímis heldur hefur gos­virkni á þeim flust á milli þeirra með 30-150 ára löngum hléum á milli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár