Fyrsta mynd af gosinu var birt á Facebook-síðu Veðurstofu Íslands klukkan 23:04 í kvöld. Hún var tekin úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Syðri endi gostungunnar er um 2,6 kílómetra frá Suðurstrandarvegi. Miðað við fyrstu upplýsingar er sprungan um 500 m löng, samkvæmt stöðuuppfærslu Veðurstofunnar.
Hér er hægt að sjá myndband af gosinu:
Eldgosið er við Fagradalsfjall. Gosið var staðfest í gegnum vefmyndavélar og gervitunglamyndir. Lítill órói sást á mælum í aðdraganda þess en fyrsta tilkynning barst Veðurstofunni klukkan 21.40.
Samkvæmt tilkynningu frá henni er fluglitakóði rauður. Samkvæmt því sem Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, sagði við fréttastofu RÚV, er gosið fjarri almannaleið.
Kortið hér að neðan sýnir líklega staðsetningu gossins miðað við nýjustu upplýsingar. Upptökin eru rétt austan Fagradalsfjalls samkvæmt mati Veðurstofunnar, líklega í Geldingadal.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir