Árni Páll skipaður í stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA

Fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hefur gengt starfi vara­fram­kvæmda­stjóra Upp­bygg­ing­ar­sjóðs EES und­an­farið. Hann hefur nú verið skip­aður í stjórn ESA.

Árni Páll Árnason.
Árni Páll Árnason. Mynd: Úr safni

Árni Páll Árnason, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur verið skip­aður í stjórn Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) til næstu fjög­urra ára. Nýja stjórnin tekur við í byrjun næsta árs. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Núver­andi full­trúi Íslands í stjórn­inni er Högni S. Krist­jáns­son.

Árni Páll var félags- og trygg­inga­mála­ráð­herra 2009–2010 og efna­hags- og við­skipta­ráð­herra 2010–2011. Hann var alþing­is­maður frá 2007-2016 og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar frá 2013-2016, en ákvað að bjóða sig ekki fram til end­ur­kjörs í júní 2016 þegar Oddný Harð­ar­dóttir var kjörin for­maður. Hún stýrði Sam­fylk­ing­unni svo í gegnum kosn­ing­arnar 2016, þar sem flokk­ur­inn beið afhroð og datt næstum út af þingi. Oddný hætti í kjöl­farið og Logi Ein­ars­son, þáver­andi vara­for­maður tók við for­mennsku.

Árni Páll braut­skráð­ist með emb­ætt­is­próf frá laga­deild Háskóla Íslands 1991 og sér­hæfði sig í Evr­ópu­rétti. Hann starf­aði í utan­rík­is­þjón­ust­unni að Evrópu-, við­skipta- og varn­ar­málum á árunum 1992-1998 og sinnti síðan lög­mennsku þar til hann tók sæti á Alþingi.

Hann hefur und­an­farið gengt starfi vara­fram­kvæmda­stjóra Upp­bygg­ing­ar­sjóðs EES. Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir hann: „Ég tek við nýju starfi hér í Brussel 1. jan­úar nk, þegar ég tek sæti í stjórn Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA), sem hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd EES-samn­ings­ins á Íslandi, Liechtenstein og Noregi og gætir þess að þau upp­fylli skuld­bind­ingar sínar sem þátt­tak­endur á innri mark­aði Evrópu.

Ég er afskap­lega stoltur og þakk­látur fyrir að hafa verið treyst fyrir þessu mik­il­væga verk­efni og hlakka til að takast á ný við verk­efni á sviði Evr­ópu­réttar.“

Eft­ir­lits­stofnun EFTA hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd EES-samn­ings­ins í EFTA-ríkj­unum, sem aðild eiga að EES-samn­ingnum, og gætir þess að þau upp­fylli skuld­bind­ingar sínar sem þátt­tak­endur á innri mark­aði Evrópu. Stofn­unin hefur einnig ákveðnar eft­ir­lits­heim­ildir á sviði sam­keppn­is­mála og gætir að því að rík­is­að­stoð raski ekki virkri sam­keppni á mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár