Pönksafnið minnti Chris á gamla tíma með Iggy Pop

Chris Erring nýtti milli­lendingu í að uppfylla drauma­ferð sína til Íslands.

Var ekki búið að finna upp orð yfir pönkið Chris stýrði tónleikaferðalagi Iggy Pop á árunum 1974 til 1975.

Fólkið hérna er alveg yndislegt. Vingjarnlegt, opið og skemmtilegt. Fólkið frá mínum slóðum á Nýja-Englandi, það getur alveg verið vingjarnlegt en það er ekki opið og hlýtt eins og hérna. Þetta er búið að vera frábært, allir sem við höfum hitt búnir að vera hjálp­samir og góðir við okkur. 

Mér fannst mjög áhugavert að sjá pönksafn ofar í götunni, ég hef ekki séð svona áður. Ég er ekki enn búinn að kíkja þangað en það væri gaman að sjá hvernig þetta lítur út. Það minnti mig á þegar ég var með Iggy Pop í gamla daga.

Ég stýrði tónleika­ferðalagi þeirra fyrir Raw Power-plötuna frá 1973–1974, sem var frekar goðsagna­kenndur túr. Á þeim tíma vissum við ekkert að við værum að spila pönk, það var ekkert búið að finna upp orðið „pönk“. Iggy sjálfur sagði það seinna meir að honum hafi verið illa við hugtakið „pönk“. En það skiptir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár