Leggja fram tillögu um að innkalla kvótann á 20 árum og bjóða hann síðan upp

Allir þing­menn Pírata standa að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að íslenska ríkið inn­kalli allar úthlut­aðar afla­heim­ildir á 20 árum og bjóði þær svo upp gegn hæsta gjaldi „sem nokkur er fús til að greiða“.

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að inn­kalla allar úthlut­aðar afla­heim­ildir til sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja á 20 árum og bjóða þær þess í stað upp á opnum mark­aði þannig að hægt verði að tryggja fullt gjald fyrir nýt­ingu auð­lind­ar­innar. Í til­lög­unni segir að með fullu gjaldi sé átt við mark­aðs­verð, eða „hæsta gjald sem nokkur er fús að greiða fyrir afnot af auð­lind­inni, t.d. á mark­aði eða upp­boði eða í samn­ingum við ríkið sem umboðs­mann rétts eig­anda, þjóð­ar­innar.“

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að það hafi sýnt sig á und­an­förnum árum að auð­lind­arenta íslensku þjóð­ar­innar af fisk­veiði­auð­lind­inni hafi ekki verið í sam­ræmi við vænt­ingar hennar. „Ítrekað hefur komið upp í sam­fé­lag­inu megn óánægja með ákvarð­anir Alþingis um veiði­gjöld og ljóst að núver­andi fyr­ir­komu­lag er ófull­nægj­andi þegar kemur að því að tryggja sann­gjarna og rétt­láta gjald­töku af auð­lind­inni. Flutn­ings­menn telja full­reynt að tryggja þjóð­inni rétt­láta hlut­deild í auð­lind hennar með núver­andi fyr­ir­komu­lagi. Með því að bjóða afla­heim­ildir upp á opnum mark­aði verður hægt að tryggja að fyrir þessa auð­lind fáist fullt gjald.“

Leigugjaldið óskipt í ríkissjóð

Í til­lög­unni felst að Krist­jáni Þór Júl­í­us­syni, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, verði falið að und­ir­búa og leggja fram, fyrir 1. nóv­em­ber næst­kom­andi, frum­varp sem myndi lög­festa að árlega yrði inn­kallað fimm pró­sent af úthlut­uðum veiði­heim­ildum að ári liðnu frá gild­is­töku lag­anna. Yrðu þau að veru­leika myndi því allar veiði­heim­ildir vera inn­kall­aðar eftir 21 ár.

Sá hluti sem inn­kall­aður yrði ætti svo að bjóða upp til tutt­ugu ára í senn á opnum mark­aði. Í til­lög­unni segir að til að gæta sjón­ar­miða um sjálf­bærni og sam­fé­lags­lega sátt verði óút­hlutað afla­mark „boðið upp á aðgreindum mörk­uðum sam­kvæmt nán­ari útfærslu ráð­herra.“ Leigu­gjaldið myndi renna óskipt í rík­is­sjóð og allar upp­lýs­ingar um það yrðu gerðar opin­berar og aðgengi­legar. Tryggð verði jöfn aðkoma að upp­boðum og gegn­sæi við fram­kvæmd þeirra.

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir enn fremur að ein af und­ir­stöðum þess að fisk­veiði­stjórn­ar­kerfið geti talist sjálf­bært sé að um til­högun þess ríki sam­fé­lags­leg sátt. „Til að tryggja þessa sátt leggja flutn­ings­menn til að óút­hlut­aðar afla­heim­ildir verði boðnar upp á aðgreindum mörk­uðum. Nánari útfærsla hvað varðar aðgrein­ingu mark­aða verði falin ráð­herra, en lagt er til að mark­aðir verði aðgreindir eftir land­svæðum að teknu til­liti til byggða­sjón­ar­miða. Það skiptir máli að íslenskt sam­fé­lag í heild upp­lifi sátt um fisk­veiði­stjórn­ar­kerfið en ekki síst að afmörkuð byggð­ar­lög geri það, sér­stak­lega þar sem sjáv­ar­út­vegur er á meðal helstu atvinnu­greina sam­fé­lags­ins. Með því að afmarka þá mark­aði þar sem upp­boðið fer fram má betur tryggja sam­fé­lags­lega sátt sem er lyk­il­þáttur í sjálf­bærni fisk­veiði­stjórn­ar­kerf­is­ins til lang­frama.“

Um 1.200 milljarða virði

Sé miðað við algengt virði á kvót­anum í við­skipt­um, og upp­lausn hans, er heild­ar­virði úthlut­aðs kvóta til íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um 1.200 millj­arðar króna.

Kjarninn greindi frá því í lok apríl að tíu stærstu útgerðir lands­ins haldi sam­tals á rúm­lega helm­ingnum af úthlut­uðum kvóta. Innan þessa hóps eru aðilar sem eru tengdir þótt þeir séu það ekki sam­kvæmt lögum um fisk­veið­ar. Brim, Sam­herji og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eru fyr­ir­ferða­mestu útgerð­irn­ar. Þær halda, einar og sér og ásamt félögum sem eig­endur þeirra eiga í, á rúm­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár