Tíu útgerðir héldu á rúmlega helmingi kvótans í lok síðasta mánaðar

Brim, Samherji og FISK-Seafood eru risarnir í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Útgerð­irnar og aðrar sem þær eða eig­endur þeirra eiga í fara með tæp­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Tíu stærstu útgerðir lands­ins halda sam­tals á tæp­lega 53 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Það er mjög svipuð staða og var uppi í sept­em­ber í fyrra. Innan þessa hóps eru aðilar sem eru tengdir þótt þeir séu það ekki sam­kvæmt lögum um fisk­veiðar. Brim, Samherji og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga eru fyr­ir­ferða­mestu útgerð­irnar. Þær halda á, einar og sér og ásamt félögum sem eig­endur þeirra eiga í, á tæp­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta.

Þetta kemur fram í nýjum tölum um kvóta­stöðu 100 stærstu útgerða lands­ins þann 31. mars síð­ast­lið­inn.

Fiski­stofa birtir töl­urnar en hún hefur eft­ir­lit með því að yfir­ráð ein­stakra aðila yfir afla­hlut­deildum fari ekki umfram þau mörk sem lög um stjórn fisk­veiða kveða á um. Þau lög segja að hámarks­afla­hlut­deil sem ein­stakir eða tengdir aðilar halda á megi ekki fara yfir tólf pró­sent af heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deildar allra teg­unda. Samkvæmt gild­andi lögum fer eng­inn yfir þau mörk, en mikil póli­tísk umræða hefur verið um að breyta því hvað telj­ist tengdir aðilar í sjáv­ar­út­vegi und­an­farin miss­eri.

Eiga að fá sex ár til að koma sér undir þakið

Í febr­úar kynnti Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, drög að frum­varpi um breyttar skil­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðilar.

Í þeim drögum kom fram að þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veiði­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­bundið kvóta­þak, eða sex ár.

Frum­varps­drögin byggði á vinnu verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni. Hún var skipuð í mars 2019, í kjöl­far þess að Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði svartri stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu í jan­úar 2019.

[adspot]Í til­lög­un­um, sem voru fimm tals­ins, fólst að skil­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­búð­ar­fólks og barna eða fóst­ur­barna þeirra, að ákveðin stjórn­un­ar­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­stæða, að skil­greint verði hvað felst í raun­veru­legum yfir­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­sent af afla­hlut­deild eða 2,5 pró­sent af krókafla­hlut­deild skulu til­kynna til Fiski­stofu áætl­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­deild eða kaup á hlut­deild og koma kaupin ekki til fram­kvæmda nema sam­þykki Fiski­stofu liggi fyrir og að Fiski­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

Í til­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hluts­deild né kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðil­um. Þau mál eru enn til skoð­unar hjá nefnd­inni og eiga að vera til umfjöll­unar í loka­skýrslu hennar. Þeirri skýrslu átti að skila í síð­asta mán­uði, eða í mars 2020.

Brim, Samherji og FISK eru risarnir í íslenskum sjávarútvegi

Litlar breyt­ingar eru á umfangi kvóta þeirra stóru útgerð­ar­hópa sem tengj­ast inn­byrðis án þess þó að verða tengdir aðilar sam­kvæmt lögum. Þannig er Brim sú útgerð sem heldur á mestum kvóta, eða 10,13 pró­sent. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem á 44,65 pró­sent hlut í Brim beint og í gegnum dótt­ur­fé­lag sitt RE-13 ehf, hefur fengið úthlutað 3,51 pró­sent af öllum afla­heim­ildum. Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, for­stjóra og stjórn­ar­manns í Brimi.

Til við­bótar heldur útgerð­ar­fé­lagið Ögurvík, að fullu í eigu Brims, á 1,55 pró­sent af úthlut­uðum kvóta. Þessi þrjú félög eru því með 15,19 pró­sent af úthlut­uðum kvóta.

Samherji er með næst mesta afla­hlut­deild, eða 7,02 pró­sent. Fyr­ir­tækið er í eigu for­­­­stjór­ans Þor­­­­steins Más Bald­vins­­­­sonar, útgerð­­­­ar­­­­stjór­ans Krist­jáns Vil­helms­­­­sonar og Helgu S. Guð­munds­dótt­ur, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins Más. Útgerð­­­­ar­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­ar, sem er í 100 pró­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­fest­inga­­­­fé­lag heldur á 0,64 pró­­­­sent hans.

[adspot]Síld­­­­­ar­vinnslan, sem Samherji á beint og óbeint 49,9 pró­sent hlut í, er svo með 5,2 pró­sent afla­hlut­deild og Bergur-Huginn, í eigu Síld­ar­vinnsl­unnar, er með 2,3 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða. Sam­an­lagt er þessi blokk með 16,5 pró­sent afla­hlut­deild.

Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga á FISK Seafood, sem heldur á 5,5 pró­­­sent heild­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­sent í Vinnslu­­­stöð­inni í Vest­­­manna­eyjum sem er með 4,5 pró­sent heild­­­ar­afla­hlut­­­deild. Þá á Vinnslu­stöðin 48 pró­sent hlut í útgerð­ar­fé­lag­inu Huginn í Vest­manna­eyjum, sem heldur á 0,76 pró­sent af útgefnum kvóta.

FISK á til við­bótar allt hlutafé í Soff­an­­­ías Cecils­­­son, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­ar­kvóti þess­­­ara þriggja rétt yfir ell­efu pró­sent, og er því undir 12 pró­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­greindir með öðrum hætti.

Sam­an­lagt eru þessir þrír hópar með yfir­ráð yfir tæp­lega 43 pró­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár