Mynd: Bára Huld Beck

Tengdar útgerðir fá tæp sex ár til að koma sér undir kvótaþak

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur kynnt drög að frum­varpi um breyttar skil­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðilar í sjáv­ar­út­vegi. Þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veiði­árið 2025/2026 til að koma sér undir kvóta­þak.

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur kynnt drög að frum­varpi um breyttar skil­grein­ingar á því hvað telj­ist tengdir aðilar í sjáv­ar­út­vegi. Þeir sem laga­breyt­ingin hefur áhrif á munu hafa fram á fisk­veiði­árið 2025/2026 til að koma sér undir lög­bundið kvóta­þak.

Til stendur að breyta lögum á þann hátt að skil­grein­ing á tengdum aðilum í sjáv­ar­út­vegi verði útvíkkuð og gerð skýr­ari. Áfram sem áður, að minnsta kosti um sinn, mega tengdir aðilar halda á allt að 12 pró­sent kvóta og þurfa að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að telj­ast lög­lega tengdir.

Í frum­varpi sem Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur kynnt í drögum í sam­ráðs­gátt stjórn­valda er bráða­birgða­á­kvæði kynnt til sög­unnar sem segir að fari afla­hlut­deild útgerða í eigu tengdra aðila, sem ekki töld­ust tengdir áður en lögin tóku gildi, yfir áður­nefnd mörg þá munu þeir hinir sömu frá frest til loka fisk­veiði­árs­ins 2025/2026 til að fara niður fyrir kvóta­þakið. Það hefst 1. sept­em­ber 2025.

Því munu stór­út­gerðir lands­ins, sem mögu­lega fara yfir áður­nefnt kvóta­þak verði frum­varpið að lögum, fá tæp sex ár að óbreyttu til að koma sér í lög­lega stöðu.

Eftirlit verið í lamasessi

Frum­varps­drögin, sem sett voru inn í sam­ráðs­gátt stjórn­valda á föstu­dag, byggja á vinnu verk­efna­stjórnar um bætt eft­ir­lit með fisk­veiði­auð­lind­inni. Hún var skipuð í mars 2019, í kjöl­far þess að Rík­is­end­ur­skoðun skil­aði svartri stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu í jan­úar 2019.

Þar var meðal ann­ars bent á að Fiski­stofa kanni ekki hvort yfir­­ráð tengdra aðila í sjá­v­­­ar­út­­­vegi yfir afla­hlut­­deildum væri í sam­ræmi við lög. Þ.e. að eft­ir­lits­að­il­inn með því að eng­inn hópur tengdra aðila ætti meira en 12 pró­­sent af heild­­ar­afla væri ekki að sinna því eft­ir­liti í sam­ræmi við lög.

Hingað til hefur eft­ir­litið með þessu verið þannig háttað að starfs­­menn frá Fiski­­stofu hafa farið tvisvar á ári og spurt sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækin um hversu miklum kvóta þau og tengdir aðilar halda á. Sam­­kvæmt skýrslu Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar var um tvö dags­verk að ræða á ári. „Fiski­­stofa treystir nán­­ast alfarið á til­­kynn­ing­­ar­­skyldu fyr­ir­tækja við eft­ir­lit með sam­­þjöppun afla­heim­ilda,“ sagði í skýrsl­unni.

Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni að ráð­­ast þyrfti í end­­ur­­skoðun á ákvæðum laga um stjórn fisk­veiða um „bæði yfir­­ráð og tengsl aðila svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­­þjöppun afla­heim­ilda“.

Hluta af vinnu flýtt vegna Samherjamálsins

Í verk­efna­stjórn­inni sitja Sig­urður Þórð­ar­son, sem er for­mað­ur, Bryn­hildur Bene­dikts­dótt­ir, sér­fræð­ingur á skrif­stofu sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eldis í atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu, Elliði Vign­is­son, sveit­ar­stjóri, Hulda Árna­dótt­ir, lög­maður og Oddný G. Harð­ar­dótt­ir, alþing­is­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­innar.

Í nóv­em­ber 2019, í kjöl­far Sam­herj­a­máls­ins, óskaði Krist­ján Þór eftir því að verk­efna­stjórnin myndi skila þeim hluta vinnu sinnar sem snéri að tengdum aðilum fyrir 1. jan­úar 2020. Henni var skilað skrif­lega 30. des­em­ber 2019.

Eftir að viðskiptahættir Samherja í Namibíu og víðar voru opinberaðir ákvað ríkisstjórnin að flýta vinnu við breytingar á skilgreiningu á tengdum aðilum í sjávarútvegi.
Eftir að við­skipta­hættir Samherja í Namibíu og víðar voru opin­beraðir ákvað rík­is­stjórnin að flýta vinnu við breyt­ingar á skil­grein­ingu á tengdum aðilum í sjáv­ar­út­vegi.

Í til­lög­unum var hvorki tekin afstaða til reglna um hámarks­afla­hluts­deild né kröfu um hlut­fall meiri­hluta­eignar í tengdum aðil­um. Þau mál er enn til skoð­unar hjá nefnd­inni og verður fjallað um þau í loka­skýrslu henn­ar, sem á að skila í mars 2020.

Í til­lög­un­um, sem voru fimm tals­ins, fólst að skil­grein­ing á tengdum aðilum verði látin ná til hjóna, sam­búð­ar­fólks og barna þeirra, að ákveðin stjórn­un­ar­leg tengsl milli fyr­ir­tækja leiði til þess að fyr­ir­tækin eru talin tengd nema sýnt sé fram á hið gagn­stæða, að skil­greint verði hvað felst í raun­veru­legum yfir­ráðum, að aðilar sem ráða meira en sex pró­sent af afla­hlut­deild eða 2,5 pró­sent af krókafla­hlut­deild skulu til­kynna til Fiski­stofu áætl­aðan sam­runa, eða kaup í félagi sem ræður yfir hlut­deild eða kaup á hlut­deild og koma kaupin ekki til fram­kvæmda nema sam­þykki Fiski­stofu liggi fyrir og að Fiski­stofu verði veittar auknar heim­ildir til afla gagna.

Fosturbörn munu teljast til tengdra aðila

Frum­varpið sem kynnt var í sam­ráðs­gátt­inni á föstu­dag tekur til allra þeirra til­lagna sem verk­efna­stjórnin lagði fram. Að ein­hverju leyti gengur það lengra þar sem fóst­ur­börn munu líka telj­ast tengdir aðilar.

Í því segir enn fremur að tengsl skuli talin milli aðila sem stjórnað sé af sömu ein­stak­lingum nema að sýnt sé fram á hið gagn­stæða. Raun­veru­leg yfir­ráð skap­ist af rétti, með samn­ingum eða með ein­hverjum öðrum hætti sem ann­að­hvort sér­stak­lega eða sam­an­lagt, og með hlið­sjón af stað­reyndum eða laga­legum atriðum sem við eiga, gerir aðila kleift að hafa afger­andi áhrif á félag, einkum með:

  1. eign­ar­haldi eða rétti til að nota eignir félags, allar eða að hluta,
  2. rétti eða samn­ingum sem veita afger­andi áhrif á sam­setn­ingu, atkvæða­greiðslu, eða ákvarð­anir stofn­ana félags.

Yfirráð öðl­ast aðilar sem:

  1. eru rétt­hafar eða eiga til­kall til réttar sam­kvæmt samn­ingum þar að lút­andi, eða
  2. þrátt fyrir að vera ekki hand­hafar slíks réttar eða eiga ekki til­kall til réttar sam­kvæmt slíkum samn­ingum hafa mögu­leika til að beita slíkum rétt­indum.

Samherji og Síldarvinnslan stundum tengd en stundum ekki

Þau útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem munu telj­ast tengdir aðilar sam­kvæmt frum­varps­drög­unum munu þó fá, líkt og áður sagði, mörg ár til að koma mál­efnum sínum í lög­legan far­veg, verði þeir brot­legir við lögin eftir að þau taka gildi. Samkvæmt bráða­birgða­á­kvæði munu þeir fá til fisk­veiði­árs­ins 2025/2026 til þess.

Nokkrir tengdir hópar eru mjög umsvifa­­miklir í íslenskum sjá­v­­­ar­út­­­vegi og halda á stórum hluta úthlut­aðs kvóta.

Á meðal þeirra er Sam­herji, stærsta sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki lands­ins. Í sept­­­­em­ber 2019 var Sam­herji, sem nýlega var ásakað um vafa­­­sama og mög­u­­­lega ólög­­­lega við­­­skipta­hætti víða um heim, með 7,1 pró­­­­­sent úthlut­aðs kvót­a. Útgerð­­­­ar­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­ar, sem er í 100 pró­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­fest­inga­­­­fé­lag heldur á 0,64 pró­­­­sent hans.

Síld­­­­­ar­vinnslan, sem er Samherji á beint og óbeint 49,9 pró­sent hlut í, hefur alltaf haldið því fram að fyr­ir­tækið og Samherji væru ekki tengdir aðilar. Þor­steinn Már Bald­vins­son var samt sem áður for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar árum saman allt þar til að hann sagði af sér, að minnsta kosti tíma­bundið, báðum stöðum vegna Sam­herj­a­máls­ins í nóv­em­ber 2019. Kjarninn greindi frá því í þeim mán­uði að sam­kvæmt kynn­ingum sem er að finna í þeim gögnum sem Wikileaks birti sam­hliða opin­berun nokk­urra fjöl­miðla á Sam­herj­a­mál­inu komi skýrt fram að Samherji hafi kynnt Síld­ar­vinnsl­una sem upp­sjáv­ar­hluta sam­stæðu sinnar erlendis og birt myndir af starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Ef Samherji og Síld­ar­vinnslan yrðu flokk­aðir sem tengdir aðilar myndi sam­eig­in­legur kvóti sam­stæð­unnar fara langt yfir lög­bundið kvóta­þak, enda heldur Síld­ar­vinnslan á 5,3 pró­­­­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­­­­­fyr­ir­tækið Berg­­­­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­­­­sent kvót­ans, en það er að öllu leyti í eigu Síld­­­­­ar­vinnsl­unn­­­­­ar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­­­­­deild þess­­­­­ara aðila er því rúm­­­­lega 16,6 pró­­­­­sent.

Samherji/Síld­ar­vinnslan þarf þó ekki að hafa áhyggjur af því að þurfa að losa sig við kvóta í nán­ustu fram­tíð. Enn hafa engar breyt­ingar verið kynntar á því ákvæði að það þurfi að eiga meiri­hluta í öðru útgerð­ar­fyr­ir­tæki til að telj­ast tengdur og því er 49,9 pró­sent eign­ar­hlut­ur­inn enn undir því marki. Jafnvel þótt að ein­hver þeirra boð­uðu breyt­inga sem eru í frum­varps­drögum Krist­jáns Þórs um tengda aðila myndu ná yfir Samherja/Síld­ar­vinnsl­una þá munu fyr­ir­tækin hafa mörg ár til að finna lausn á þeirri stöðu.

Bræður ekki tengdir aðilar

Mögulegt er að frum­varpið hafi áhrif á fleiri risa í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Brim er það sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tæki sem heldur á mestum kvóta, en félagið fór yfir hámark sem lög heim­ila í kvóta, í króka­afla­hlut­­deild í þorski, í nóv­­­em­ber þegar stjórn þess sam­­­­þykkti samn­inga um kaup á tveimur sjá­v­­­­­­ar­út­­­­­­­­­vegs­­­­­fyr­ir­tækjum í Hafn­­­­­ar­­­­­firði, Fisk­vinnsl­unni Kambi og Grá­brók. Hjálmar Krist­jáns­­­son átti 39 pró­­­sent í Kambi og allt hlutafé í Grá­brók. Brim var því að kaupa eignir af bróður for­­­stjóra síns. Sam­an­lagt kaup­verð nam rúm­­­­­lega þremur millj­­­­­örðum króna.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Reykja­vík­­­­­­­­­ur, sem á um 46,26 pró­­­­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag var 1. sept­­­­­em­ber síð­­­­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­­­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík (í eigu Brims) með 1,3 pró­­­­­sent afla­hlut­­­­­deild.

Þann 10. des­em­ber síð­­ast­lið­inn greindi Kjarn­inn frá því að Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­víkur hefði keypt 33,3 pró­­­sent hlut KG fisk­verk­unar í eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag­inu Krist­ján Guð­­­munds­­­son ehf., sem átti 37 pró­­­sent í Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­vík­­­­­ur.

Brim er það útgerðarfyrirtæki sem heldur á mesti aflahlutdeild.
Brim er það útgerð­ar­fyr­ir­tæki sem heldur á mesti afla­hlut­deild.

Í orð­­­send­ingu sem Kjarn­­­anum barst frá Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­víkur í kjöl­far ofan­greindra tíð­inda sagði að þar með séu „rofin fjár­­­hags­­­leg tengsl á milli bræðr­anna Guð­­­mundar og Hjálm­­­ars Krist­jáns­­­sona. Eign­­­ar­hald félaga þeirra bræðra á hlutafé í Brimi hf. er aðskil­ið.“

Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­víkur er þar af leið­andi að upp­­i­­­­stöðu í eigu Guð­­­mundar Krist­jáns­­­son­­­ar, sem er einnig for­­­stjóri Brims. Eign­­­ar­hlutur félags­­­ins í Brim er nú 36,13 pró­­­sent. Auk þess eiga tvö tengd félög þess hlut, þar af á FISK-­­­Seafood eign­­­ar­halds­­­­­fé­lag, í 100 pró­­­sent eigu Útgerð­­­ar­­­fé­lags Reykja­vík­­­­­ur, 10,05 pró­­­sent hlut. Sam­tals á þessi sam­­­staða Guð­­­mundar Krist­jáns­­­sonar því nú 46,26 pró­­­sent í sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­ris­an­­­um.

Félag Hjálm­­­ars Þór Krist­jáns­­­son­­­ar, KG Fisk­verkun á Rifi, er líka á meðal stærstu eig­enda Brims, með 6,5 pró­­­sent eign­­­ar­hlut.

Þeir bræður eru ekki skil­­­greindir sem fjár­­­hags­­­lega tengdir og verða það ekki heldur ef frum­varp Krist­jáns Þórs verður að lögum, enda telj­ast bræður ekki til tengdra aðila sam­kvæmt því. Við­mæl­endur Kjarnans sem komu að mótun til­lagn­anna sögðu að það hefði meðal ann­ars verið vegna þess systkin séu ekki alltaf sátt eða í sam­starfi.

Sam­an­lagður kvóti þess­­­ara þriggja félaga (Brims, Ögur­víkur og Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur), sem eru ekki skil­­­greind sem tengd, var 15,6 pró­­­sent í byrjun sept­­­em­ber síð­­­ast­lið­ins. Sú tala gæti hafa tekið breyt­ingum enda mikil við­skipti átt sér stað innan þessa mengis síð­ustu mán­uði. Von er á nýjum tölum frá Fiski­stofu um úthlut­aðar afla­hlut­deild stór­út­gerða á næstu vikum.

Lítill hópur með rúm­­lega helm­ing

Kaup­­­fé­lag Skag­­­firð­inga á síðan FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­­­sent heild­­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­­sent í Vinnslu­­­stöð­inni í Vest­­­manna­eyjum sem er með fimm pró­­­sent heild­­­ar­afla­hlut­­­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­­­ías Cecils­­­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­­sent kvót­ans. Sam­tals nemur heild­­­ar­kvóti þess­­­ara þriggja ótengdu aðila 10,6 pró­­­sent, og er því undir 12 pró­­­sent mark­inu þótt þeir yrðu skil­­­greindir með öðrum hætti.

Sú breyt­ing hefur hins vegar orðið á, frá 1. sept­­­em­ber síð­­­ast­liðn­­­um, að Útgerð­­­ar­­­fé­lag Reykja­víkur keypti ríf­­­lega 10,18 pró­­­sent hlut FISK Seafood í Brim, sem FISK hafði keypt í ágúst m.a. af líf­eyr­is­­­sjóðnum Gildi, á 6,6 millj­­­arða króna, á tæp­­­lega átta millj­­­arða króna þann 9. sept­­­em­ber. Hagn­aður FISK var, sam­­­kvæmt þessu hátt í 1,4 millj­­­arðar króna á nokkrum dög­­­um. Í grein sem nokkrir sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­menn í Skaga­­­firði skrif­uðu á vef­inn Feyki (í eigu Kaup­­­fé­lags Skag­­­firð­inga) 20. sept­­­em­ber 2019 var óvænt greint frá því að um 4,6 millj­­­arðar króna af þessum tæp­­­lega átta millj­­­arða króna kaup­verði hefði verið greitt með afla­heim­ild­­­um. „Það þýðir um 10 pró­­­sent aukn­ingu í afla­heim­ildum FISK Seafood í tonnum og um leið umtals­verða aukn­ingu í umsvifum félags­­­ins hér á heima­slóð­un­um,“ sagði í grein­inn­i.

Sam­an­lagt héldu þau félög sem talin voru upp hér að ofan, og tengj­­­ast Sam­herja, Útgerð­­­ar­­­fé­lagi Reykja­víkur og Kaup­­­fé­lagi Skag­­­firð­inga, en eru samt sem áður ekki tengdir aðil­­­ar, alls á 42,2 pró­­­sent af öllum kvóta í land­inu í byrjun sept­­em­ber 2019.

Ef við er bætt Vísi og Þor­birni í Grinda­vík, sem héldu sam­an­lagt á 8,4 pró­­­sent af heild­­­ar­kvót­­­anum og voru í sam­eig­ing­­­ar­við­ræð­um um nokk­­urra mán­aðar skeið, þá fer það hlut­­­fall yfir 50 pró­­­sent. Vísir og Þorbjörn slitu hins vegar nýverið þeim við­ræðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár