Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Eins og venjulega er margt merkilegt að gerast víða um heiminn. Hér er listi dagsins í dag.


  1. Mótmælin vegna dauða Freddie Gray, 25 ára blökku­manns sem lést í haldi lögreglu í Baltimore, hafa nú breiðst út til New York.

  2. Fjöldi látinna í Nepal er nú orðinn 5.500 manns, en enn á eftir að ná til margra svæða vegna erfiðra aðstæðna. Fjöldi látinna gæti því verið mun hærri.

  3. Í dag verður farið yfir tillögur Grikkja um umbætur í landinu, en vonast er til þess að tillögur Grikkja verði til þess að samið verði um neyðarlán áður en þeir þurfa að greiða næstu afborgun af lánum til Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinn, en það er 12. maí.

  4. Banda­ríkin hafa beðið Írani um aðstoð við að hafa áhrif á Hútí uppreisnar­mennina í Jemen og fá þá til að samþykkja vopnahlé.

  5. 40 eru liðin frá því að stríðinu í Víetnam lauk. Tíma­mótanna var minnst með skrúð­göngu um Ho CHi Minh borg.

  6. Suður-Kóreumenn segja að Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, hafi skipað fyrir um aftökur fimmtán hátt­settra embættis­manna það sem af er ári vegna óhlýðni við leið­togann.

  7. Brasilískur maður sem var einn þeirra átta fíkniefna­smyglara sem voru teknir af lífi í Indónesíu í gær átti við geðræn vandamál að stríða. Hann vissi ekki hvað var að koma fyrir hann fyrr en á síðustu andar­tökum lífs hans að sögn prests á staðnum.

  8. Flutninga­skip frá Marshall-eyjum var stöðvað af írönskum yfir­völdum og meinað að halda áfram för sinni, en ekki er vitað hvers vegna það var stöðvað, að sögn fyrir­tækisins sem á það.

  9. Teikn­arinn sem teiknaði myndina af Múhameð spámanni á Charlie Hebdo eftir árásirnar á blaðið í janúar segist vera hættur að teikna spámanninn.

  10. Nýjar gervihnatta­myndir sýna að kjarnorkuver í Norður-Kóreu, sem hefur verið lokað undan­farið, gæti verið komið í gang aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár