Fimmföldun miðaverðs á HM í knattspyrnu

Heims­meistara­mótið í knatt­spyrnu í Banda­ríkjunum, Kanada og Mexíkó sniðið að sterk­efnuðu fólki. Dýnamísk verð­lagning hækkar ódýrustu miðana Evrópskir fótbolta­áhugamenn mótmæla.

Ný verðlagning
Ný verð­lagn­ing Gianni Infantino, for­seti Alþjóða­knatt­spyrnu­sam­bands­ins FIFA, og Donald Trump Banda­ríkja­for­seti kynna drátt í riðla­keppi FIFA, á sama við­burði og Trump var sæmdur nýjum frið­ar­verð­launum FIFA: Mynd: AFP

Verð á aðgangsmiðum á heims­meistara­mótið í knatt­spyrnu 2026 í Banda­ríkjunum, Kanada og Mexíkó hefur vakið mikla reiði meðal stuðnings­manna víða um heim. Dæmi eru um að ódýrasti miði á úrslita­leikinn kosti yfir 4.000 bandaríkja­dali, um 580 þúsund krónur á núverandi gengi, og dýrasti miði rúmlega 8.600 dali, eða um 1,1 milljón króna.

Tryggustu aðdáendurnir fá dýrustu miðana

Óánægja blossaði upp eftir að FIFA úthlutaði sértökum miðapakka til landsliða­sambanda, svokallaðri PMA-úthlutun (Participating Member Association). Þessir miðar eru ætlaðir tryggustu aðdáendum sem safnað hafa stigum í hollustu­kerfum og ferða­hópum landsliða.

Samkvæmt samtökunum Football Supporters Europe (FSE) þarf dyggur stuðnings­maður að greiða að lágmarki um 900 þúsund krónur (6.900 dali) til að fylgja sínu liði frá fyrsta leik í riðla­keppninni og allt í úrslita­leik – nærri fimmfalt meira en á síðasta heims­meistara­móti í Katar.

Í fyrsta sinn í sögu heims­meistara­mótsins verður ekki fast verð á leikjum í riðla­keppninni. Þá eru ódýrustu miðarnir, í flokki 4, settir í sölu síðar, og þá með dýnamískri verð­lagningu, breyti­legu verði sem stýrist af eftir­spurn, sem leitt hefur til mikillar hækkunar miðaverðs. Þetta þýðir að stuðnings­fólk frá mismun­andi þjóðum mun borga mismun­andi verð fyrir leiki á sama stigi mótsins.

„Þetta eru gríðarleg svik við hefðir heims­meistara­mótsins og er litið fram hjá framlagi stuðnings­fólks til þess sjónar­spils sem keppnin er,“ sagði í yfir­lýsingu Samtaka evrópska knattspyrnu­áhangenda (FSE).

Samtökin segja í yfir­lýsingu að þau séu „slegin yfir okurverði“ sem FIFA leggi á tryggustu stuðnings­mennina og kalla eftir því að sala þessara miða verði stöðvuð „þar til lausn finnst sem virðir hefðir, alþjóðlegt eðli og menningarlegt vægi heims­meistara­mótsins“.

„Ódýrir“ miðar ekki í boði fyrir tryggustu aðdáendurna

FIFA hefur ítrekað haldið því fram að HM 2026 verði „á viðráðanlegu verði“ og bendir á að almenn sala inn á riðlakeppnis­leiki byrji á um 8.000 krónum (60 dollurum) í ódýrustu flokkum, en sem fyrr segir getur miðaverð þróast eftir eftir­spurn.

Þeir miðar eru hins vegar ekki í boði í PMA-úthlutuninni til landsliða­sambandanna. Það þýðir að stuðnings­menn sem hafa fylgt liðum sínum árum saman, safnað stigum og ferðast vítt og breitt, þurfa að greiða margfalt meira en aðrir áhorf­endur sem taka þátt í almennum útdrætti á heimasíðu FIFA.

Ferðakostnaður og vaxandi gremja

Miða­verðið er aðeins hluti heildar­kostnaðar. HM 2026 fer fram í 16 borgum í þremur löndum, og þurfa aðdáendur að búa sig undir háan flug- og gistikostnað, sérstak­lega í stór­borgum Banda­ríkjanna. Fjöl­miðlar og stuðnings­manna­samtök benda á að ferðalag fjöl­skyldu eða vinahóps geti auðveldlega farið yfir margar milljónir króna ef liðið kemst langt í keppninni.

Sumir hafa einnig bent á að bandarískar reglu­gerðir um vegabréfs­áritanir geti gert ferðina flóknari og vara­samari, þar sem umsækjendur um ferða­vegabréfs­áritun gætu þurft að afhenda fimm ára sögu af samfélags­miðla­reikningum sínum.

Stuðnings­menn óttast að þeir sem hafi fylgt lands­liðum sínum í áratugi verði víkjandi fyrir sterk­efnuðum áhorf­endum sem einfald­lega hafa efni á að greiða hvað sem er. Það gæti dregið úr stemningu og laskað „sál“ keppninnar á völlunum í Norður-Ameríku sumarið 2026, að mati gagn­rýnenda.

FIFA segir verðið endurspegla markaðinn

FIFA hefur svarað gagn­rýninni með því að vísa til þess að verð­lagningin fylgi „markaðs­venjum“ stórra íþrótta- og skemmtana­viðburða í Norður-Ameríku og að markmið sé að tryggja „sann­gjarnan aðgang“ bæði fyrir núverandi og nýja áhorf­endur. Sambandið bendir jafnframt á að tekjur af mótinu renni til uppbyggingar knatt­spyrnu um allan heim.

Þau svör hafa þó lítil áhrif haft á kröfur stuðnings­manna­samtaka, sem krefjast þess að hætt verði við núverandi miðasölu og hafin víðtæk samráð við stuðnings­menn, landsliða­sambönd og aðra hagsmuna­aðila um nýtt fyrir­komulag.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár