Saka íhaldsmenn um að plotta samsteypustjórn við UKIP

Ef marka má skoðana­kannanir í Bretlandi mun enginn flokkur ná meirihluta í þing­kosningunum í maí. Báðir stóru flokkarnir standa því frammi fyrir því að þurfa að svara spurningum um það með hvaða litlu flokkum þeir geti hugsað sér að mynda ríkis­stjórn með eftir 7. maí.

Verkamanna­flokkurinn hefur kallað eftir því að Íhalds­flokkurinn geri hreint fyrir sínum dyrum um það hvort flokkurinn íhugi samstarf við Breska Sjálfstæðis­flokkinn UKIP. Nigel Farage, formaður UKIP, sagði í dag að David Cameron, formaður Íhalds­flokksins, væri maður sem hægt væri að setjast niður með og ræða málin við. Í kjölfar þessara ummæla hefur Verkamanna­flokkurinn haldið því fram að verið sé að undirbúa „eitrað“ samstarf flokkanna tveggja.

Íhalds­menn hafa á móti varað við því að samsteypu­stjórn Verkamanna­flokksins og SNP, Skoska þjóðar­flokksins, sé í kortunum og hún yrði óstöðug. SNP mun líklega geta haft talsverð áhrif enda allt útlit fyrir stórsigur hans í Skotlandi.

Meðlimir beggja stóru flokkanna hafa sagt að samstarf við UKIP annars vegar og SNP hins vegar sé ekki á dagskránni. Formenn þeirra, David Cameron og Ed Miliband, hafa hins vegar ekki neitað neinu.

Kosninga­baráttan er á fullu þrátt fyrir að flestir séu í páskafríi. Allir leið­togarnir héldu í baráttuna á ný eftir umræðu­þáttinn á ITV í gærkvöldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár