Sólfar gefur konunglegri stofnun Everest-upplifun

Konunglega Lands­fræði­stofnun Bretlands hefur þegið EVEREST VR, sýnda­veru­leika­upp­lifun af því að klífa Everest, að gjöf frá íslenska fyrir­tækinu Sólfar Studios.

EVEREST VR, sýndar­veruleika­upplifun af því að klífa Everest-fjall, verður varanlegur hluti af Everest-safni konunglegu land­fræði­stofnunar Bretlands (the Royal Geographical Society with IBG, RGS-IBG). Þetta varð ljóst eftir að stofnunin þáði EVEREST VR að gjöf frá Sólfar Studios, íslensku sýndar­veruleika­fyrirtæki sem fram­leiddi upplifunina.

Samkvæmt upplýsingum frá Sólfari var EVEREST VR gjöfin hugsuð til að styðja við góðgerða- og fræðslu­hlutverk stofnunarinnar í að auka sýnileika og þekkingu á hinu sögulega Everest safni. Upplifunin verður notuð í kynningum og sýningum fyrir almenning, skóla og fræðimenn í Bretlandi í tengslum við Everest safn stofnunarinnar. Jafnframt verður hún einnig notuð við þjálfun og undir­búning ferða.

EVEREST VR sýndar­veruleika­upplifunin var upphaf­lega gefið út í fyrra. Um er að ræða upplifun á því að klífa hæsta fjall í heimi ásamt víðfemi þess. Hægt er að fara 18 sögulegar leiðir upp fjallið sem hægt er að upplifa frá mismun­andi stærðar­gráðum. Ein þeirra leiða sem er í boði er leiðin sem Sir Edmund Hillary og Tenzing Norgay fóru er þeim tókst fyrstum manna að ná alla leið upp á tind fjallsins.

Kjartan Pierre Emilsson, einn stofnenda Sólfars og framkvæmda­stjóri fyrir­tækisins, er ánægður með að EVEREST VR sé orðið hluti af konunglegu stofnuninni. „Þegar við kynntum okkur starfsemi hinnar konunglegu stofnunar og það gríðar­lega safn af sögulegum ljós­myndum sem þeir höfðu í Everest safni sínu vildum við strax finna leiðir til að koma þeim á framfæri í VR upplifun okkar, og þá sér í lagi myndirnar af 1953 leiðangrinum þannig að menn gætu áttað sig betur á þessum sögulega atburði í sókn manna til að kanna hið óþekkta. Hinn einstaki hæfileiki sýndar­veruleika til að flytja fólk á annars ómögulega staði er eitthvað sem við trúum sterklega á og er það okkur mikill heiður að þessi virðulega stofnun sjái einnig þarna mikla möguleika til að styðja við sinn tilgang.“

Alasdair MacLeod, yfirmaður Enterprise and Resources hjá stofnuninni, segir að mikil ánægja sé sömuleiðis innan hennar með gjöfina. „ það að setja sögulegt myndefni úr safni okkar í samhengi við lands­slagið sjálft í sýndar­veruleika gefur áhorfanda allt aðra upplifun og skilning.“

Sólfar Studios, var stofnað í Reykjavík í október 2014 af reynslu­boltum úr tölvuleikja­iðnaðinum, og hefur það að markmiði sínu að þróa og gefa út sýndar­veruleika­upplifanir. Sólfar eru með nokkrar vörur í þróun fyrir allar tegundir VR tækja, þar á meðal PlayStation VR, HTC Vive og Oculus Rift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár