Flugmaðurinn „venjulegur maður“ sem var talinn „100% hæfur“

Eftir að greint var frá því hvernig flug­slysið í frönsku ölpunum bar að, og eftir að greint var frá nafni flug­mannsins sem virðist hafa brotlent vélinni viljandi, hafa fjöl­miðlar safnað saman ýmsum upplýsingum um það hver hann var.

Maðurinn hét Andreas Lubitz og var 28 ára gamall. Hann var frá bænum Montabaur, sem er í vestur­hluta Þýska­lands, um 100 kílómetra norð­vestur af Frankfurt. Hann bjó með foreldrum sínum í Montabaur en hafði íbúð til umráða í Dusseldorf, þar sem hann vann, að sögn bæjar­stjóra Montabaur, Gabriele Wieland.

Þessi mynd var tekin af Facebook-síðu Lubitz, sem hefur síðan þá verið lokað. (Mynd: Facebook)

andreas-lubitz
andr­eas-lubitz

„Hann átti fullt af vinum, hann var ekki einfari,“ segir Peter Ruecker, góðkunningi Lubitz í samtali við Reuters. „Hann var venju­legur maður [...] Hann var mjög ánægður með starf sitt hjá Germanwings og honum gekk vel.“ Aðrir viðmælendur sögðu hann hafa verið rólyndan og þögulan, og að hann hafi ekki borið þess nein merki að vilja fremja sjálfsvíg. Hann er sagður hafa átt kærustu, hafa verið skemmtilegur og hlaupið langhlaup í frítíma sínum.

Lubitz hóf störf hjá Germanwings í september 2013 eftir að hafa verið í þjálfun hjá Lufthansa í Bremen. Hann hafði aðeins flogið 630 klukku­stundir sem flugmaður. Forstjóri Lufthansa, Carsten Spohr, sagði að Lubitz hafi tekið sér langt og óvænt hlé á meðan á þjálfun hans hjá Lufthansa stóð, en að hann hefði sannað sem sem 100 prósent hæfan til að fljúga. Hann hóf flugmanns­þjálfun árið 2008, en eftir að hann lauk námi vann hann sem flugþjónn um stund. „Það voru aldrei neinar efasemdir um hæfni hans eða hæfileika,“ sagði hann. Jafnframt kom fram í máli hans að allir flugmenn fari í sálfræðimat þegar þeir eru ráðnir inn hjá Lufthansa, en þeir þurfa aldrei að fara í slíkt mat aftur.

Svona lítur flug­stjórnar­klefi í Airbus A320 út. (Mynd:EPA)

Svona lítur flugstjórnarklefi í Airbus A320 út. (Mynd:EPA)
Svona lítur flug­stjórn­ar­klefi í Airbus A320 út. (Mynd:EPA)

Innan­ríkis­ráðherra Þýska­lands, Thomas de Maiziere, segir ekkert benda til þess að Lubitz hafi verið tengdur hryðjuverka­samtökum miðað við þær upplýsingar sem tiltækar eru um hann. Líklegri skýring er að hann hafi framið sjálfsvíg. Þótt það sé afskaplega sjaldgæft að slíkt gerist með þessum hætti eru til dæmi um það.

Lögregla gætir nú heimilis fjöl­skyldu hans í Montabaur, en fjöl­skyldan fór á slys­staðinn eins og aðstand­endur annarra sem létust. Þau voru hins vegar farin aftur til Þýska­lands þegar greint var frá því í morgun hvernig í málinu lá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár