Julian Assange reiðubúinn að gangast undir DNA-próf

Stofnandi Wikileaks uppljóstrunar­síðunnar, Julian Assange, segist reiðu­búinn að gangast undir DNA-próf vegna rann­sóknar á meintum kynferðis­brotum hans í Svíþjóð. Þetta kemur fram á vefsíðu sænska Saksóknara­embættisins.

Prófið verður tekið í tengslum við yfirheyrslu sem mun að öllum líkindum fara fram í sendiráði Ekvador í London þar sem Assange hefur dvalið sem pólitískur flótta­maður í tvö ár. Allan þann tíma hafa sænsk yfirvöld farið fram á að Assange yrði yfir­heyrður í Svíþjóð, en vegna gagnrýni heima fyrir og þeirrar stað­reyndar að tíminn er að renna út hafa þau nú breytt afstöðu sinni. Ekki er ljóst hvenær yfirheyrslan fer fram.

Haustið 2010 kærðu tvær konur Assange til lögreglu vegna meinta kynferðis­brota en hann hefur staðfast haldið fram sakleysi sínu. Í september sama ár fór hann frá Svíþjóð og í kjölfarið var gefin út handtöku­skipun og beiðni um að bresk yfirvöld myndu aðstoða við að flytja hann til yfirheyrslu í Svíþjóð. Sumarið 2012 leitaði Assange hælis í sendiráði Ekvador í Lundúnum þar sem hann hefur dvalið síðan í eiginlegu stofu­fangelsi. Stanslaus lögreglu­vakt hefur verið fyrir utan sendi­ráðið því ef Assange yfirgefur húsið er bresku lögreglunni skylt að handtaka hann.

Ágreiningur um hvar yfirheyrslan skuli fara fram


Lög­fræð­ingar Assange hafa gagn­rýnt óbil­girni sænskra yfir­valda varð­andi það hvar yfir­heyrslan skuli fara fram. Þeir ótt­ast að Assange verði fram­seldur til Banda­ríkj­anna eftir hand­töku við kom­una til Sví­þjóðar. Í mars sam­þykkti sænski sak­sókn­ar­inn Marianne Ny hins vegar að yfir­heyrslan gæti farið fram í London. Þetta kom í kjöl­far mik­illar gagn­rýni frá bæði hátt­settum lög­mönnum í Svíþjóð og dóm­stóla sem sögðu að hörð afstaða sak­sókn­ara hindr­aði í raun fram­göngu máls­ins. Í gær birt­ust svo fréttir af því í sænskum miðlum að Assange hefði fyrir sitt leyti sam­þykkt að verða yfir­heyrður í London og í dag barst til­kynn­ing frá sænskum yfir­völdum vegna DNA-rann­sókn­ar­innar. Þar kemur fram að Assange hafi lagt fram vissar kröfur en um leið og gengið hafi verið úr skugga um að þær hindri ekki rann­sókn­ina verði óskað eftir leyfi til að yfir­heyrslan geti farið fram í London. Ekki er vitað hvenær þetta geti orðið.

Lögmaður Assange sagði í viðtali við sænska Expressen í dag að DNA-prófið væri tekið með munnsköfu og í raun afar einfalt. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um samskipti sín við Assange og sagði þau falla undir trúnað milli lögmanns og skjólstæðings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár