Spyr hver afstaða íslenskra stjórnvalda sé til aftaka án dóms og laga

Þing­maður VG hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi til utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra þar sem hún spyr hver afstaða íslenskra stjórn­valda sé til þess þegar ríki beiti aftökum án dóms og laga. Hún telur svör ráð­herra hafa verið óskýr hingað til.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir Mynd: Samsett mynd

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyr­ir­spurn á Alþingi til Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra þar sem hún spyr hver afstaða íslenskra stjórn­valda sé til þess þegar ríki beiti aftökum án dóms og laga.

Hún spyr enn fremur hvort ráð­herra hafi lýst afstöðu stjórn­valda til aftök­unnar á íranska hers­höfð­ingj­anum Qasem Soleimani sem Banda­ríkja­menn felldu með loft­skeyti í byrjun jan­úar. Jafn­framt hvort ráð­herra hafi komið afstöðu Íslands til aftöku án dóms og laga á fram­færi við banda­rísk stjórn­völd.

Kjarninn greindi frá því þann 9. jan­úar síð­ast­lið­inn að Rósa Björk, sem er vara­for­maður utan­rík­is­mála­nefnd­ar, hefði kallað eftir því að Guð­laugur Þór kæmi sem fyrst á fund utan­rík­is­mála­nefndar þings­ins til að ræða ástandið milli Írans og Banda­ríkj­anna.

Svör ráðherra óskýr á fundi utanríkismálanefndar

Rósa Björk segir í sam­tali við Kjarnann að Guð­laugur Þór hafi komið á fund utan­rík­is­mála­nefndar í gær en vegna þess að henni hafi þótt svör ráð­herra óskýr þá lagði hún fram form­lega fyr­ir­spurn til hans á Alþingi. Hún seg­ist ekki geta greint frekar frá því sem fram fór á fund­inum í gær.

Fram kom í stöðu­upp­færslu Rósu Bjarkar á Facebook fyrr í jan­úar að hún vildi að á fund­inum yrðu rædd áhrif gagn­kvæmra árása á svæð­ið, hvaða stefnu og sýn íslensk stjórn­völd hefðu á mál­ið, mögu­lega fram­vindu og þá áhrif. Enn fremur hvort utan­rík­is­ráð­herra hefði verið í sam­skiptum við banda­rísk stjórn­völd eða önnur stjórn­völd vegna árás­ar­innar á hers­höfð­ingj­ann Qasem Suleimani, og þá hver þau sam­skipti hefðu ver­ið.

Ísland verður að taka afdráttarlausa afstöðu

„Nýtt ár sem byrjar með gagn­kvæmum árásum og hót­unum milli Banda­ríkj­anna og Írans veldur ugg og óvissu um afleið­ingar stór­karla­legra upp­hrópana. Þetta er ekki ein­faldur leikur karla sem fela sig á bak­við Twitt­er, heldur snýst um líf venju­legs fólks sem verður alltaf mest fyrir barð­inu á öllu stríðs­brölt­i,“ skrif­aði Rósa Björk.

Þá taldi hún að Ísland yrði að taka afdrátt­ar­lausa afstöðu gegn hót­unum um stríð og hern­að­ar­árásum á svæð­inu, svæði þar sem við­kvæmt stjórnmala­á­stand gæti breyst í púð­ur­tunnu á skömmum tíma með til­heyr­andi afleið­ing­um. „Líka á utan­rík­is­stefnu Íslands eins og við þekkjum af bit­urri reynslu. Og alveg sér­stak­lega þegar æðsti valda­maður Banda­ríkj­anna er jafn óáreið­an­leg­ur, hvat­vís og ótraustur og raunin er nún­a.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár