Mynd: EPA

Morðið í Miðausturlöndum sem orsakað gæti styrjöld

Hann er sagður arkítekt stríðs­ins í Sýrlandi, vera hug­mynda­smiður utan­rík­is­stefnu Írans og áhrifa­maður í stjórn­málum um öll Mið­aust­ur­lönd. Nú er hann allur.

Þegar Qassem Suleimani lenti á einka­þotu í Bagdad eftir flug­ferð frá Damaskus um mið­nætti á föstu­dag biðu tveir bílar hans og líf­varða hans á flug­braut­inni. Hann hafði oft­sinnis komið til slíkra heim­sókna frá heima­land­inu Íran og ekk­ert virt­ist með öðrum hætti nú en áður. En nokkrum mín­útum síðar var hann, einn valda­mesti maður Mið­aust­ur­landa, allur. Er bíl­arnir tveir höfðu ekið skamman spöl voru þeir sprengdir í loft upp með þeim afleið­ingum að allir sem í þeim voru lét­ust. Annar valda­mik­ill maður, sá valda­mesti á Vest­ur­löndum og jafn­vel í heim­inum öllum, hafði staðið á golf­velli hinum megin á hnett­inum og fyr­ir­skipað árás­ina.

En hverfum aðeins til baka. Hvað hafði átt sér stað sem end­aði með þess­ari árás? Og hver er hann, hers­höfð­ing­inn frá Íran, sem þótti slík ógn að rétt­læt­an­legt var að fella hann með þessum hætti?

Það hefur lengi andað köldu milli Írans og Banda­ríkj­anna. Og oft veru­lega köldu þótt þíða hafi verið í sam­skipt­unum inn á milli. Spenna milli stjórn­valda land­anna tveggja hefur und­an­farið magn­ast á ný, sér­stak­lega í kjöl­far þess að Donald Trump dró Banda­ríkin út úr kjarn­orku­samn­ingi stór­veld­anna við Írani fyrir tæpum tveimur árum. Samn­ing­ur­inn var gerður árið 2015 er Barack Obama sat á for­seta­stóli og Trump hefur sagt hann „versta samn­ing allra tíma“.

Skömmu fyrir árás­ina í Bagdad á föstu­dag hafði ýmis­legt dregið til tíð­inda þó að það færi hvorki mjög hátt né væri almennt talið til­efni til mik­illa við­bragða. En atburða­rásin varð hröð. Og eins og verða vill í átökum milli þjóða þá sér ekki fyrir end­ann á henni.

Við skulum byrja 250 kíló­metrum norður af Bagdad þann 27. des­em­ber á síð­asta ári. Þann dag var gerð eld­flauga­árás á her­stöð í Kirkuk, her­stöð þar sem banda­rískir og íraskir her­menn halda til og berj­ast gegn víga­mönnum Ríkis íslams sem enn er að finna í nágrenn­inu. Einn verk­taki banda­ríska hers­ins, sem var túlkur, féll í árásinni og nokkrir særð­ust.

Í kjöl­farið gerðu Banda­ríkja­menn árásir á búðir skæru­liða í land­inu, hóps sem nýtur stuðn­ings Írans, og felldu 25. Þeim árásum var mót­mælt á nýárs­dag og brut­ust stuðn­ings­menn skæru­lið­anna inn fyrir hlið banda­ríska sendi­ráðs­ins i Bagdad, kveiktu í og kröfð­ust þess að her­menn og stjórn­ar­er­ind­rekar myndu hypja sig.

Áður en þessar árásir og við­brögð við þeim áttu sér stað hafði auð­vitað margt gerst sem einnig á sinn þátt í því hvernig málin hafa nú þró­ast. Suleimani var langt frá því óþekkt stærð þó svo að nafn hans hafi ekki verið á vörum alls almenn­ings.

Þar til nú.

Mike Pompeo og Donald Trump hafa varið árásina og sagt hana nauðsynlega til að verja bandaríska hagsmuni.
Mike Pompeo og Donald Trump hafa varið árás­ina og sagt hana nauð­syn­lega til að verja banda­ríska hags­muni.

Banda­rísk stjórn­völd hafa í fleiri ár haft áhyggjur af honum og hans vax­andi völdum. Þau voru þess full­viss að hann væri einn helsti hug­mynda­smiður utan­rík­is­stefnu Írans og áhrifa­maður í póli­tísku lands­lagi víða á Mið­aust­ur­löndum.

En aftur til föstu­dags­ins örlaga­ríka.

Á flug­vell­inum í Badgad tók Abu nokkur Mahdi al-Muhandis á móti Suleimani. Þeir voru góð­kunn­ingjar enda Muhandis leið­togi Kata‘ib Hezbollah, vopn­aðra íra­skra sveita sem njóta stuðn­ings Írana. Það voru einmitt þær sem gerðu árás­ina á her­stöð­ina í Kirkuk og stuðn­ings­menn þeirra sem höfðu umkringt banda­ríska sendi­ráðið í Bagdad til að hefna fyrir loft­árásir Banda­ríkja­manna.

Upplýsingum lekið

Þeir félagar höfðu um nóg að tala, eins og fjallað er um í frétta­skýr­ingu New York Times, ekki aðeins það sem á undan var gengið í sam­skipt­unum landa þeirra við Banda­ríkin heldur einnig vax­andi óánægju almenn­ings í garð íra­skra stjórn­valda, m.a. vegna atvinnu­leysis og efna­hags­þreng­inga. Mótmæli höfðu verið á götum úti og í hópi mót­mæl­enda voru þeir sem vildu minnka áhrif íranskra stjórn­valda í Írak.

Blaða­maður The Guardian lýsir atburða­rásinni með eft­ir­far­andi hætti:

Suleimani og Muhandis sett­ust inn í annan bíl­inn og líf­verð­irnir í hinn. Bílarnir komust ekki lengra en út að enda flug­braut­ar­innar. Nokkrum dögum fyrr hafði upp­lýs­ingum um fyr­ir­hug­aða ferð Suleimanis nefni­lega verið lekið og við kom­una til Bagdad fylgd­ist amer­ískur MQ-9 dróni með ferðum þeirra, bein­tengdur við banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið og leyni­þjón­ust­una.

Dróninn var lát­inn skjóta tveimur flug­skeytum að bílnum sem Suleimani og Muhandis voru í og varð hann alelda á svip­stundu. Þriðja flug­skeyt­inu var skotið á bíl líf­varð­anna og hlaut hann sömu örlög. Hönd Suleimanis er talin sjást á myndum af árásinni. Hún þekk­ist af hring sem hann ávallt bar.

En hvers vegna var þessi árás gerð núna?

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum hafa varið árás­ina með þeim orðum að hún hafi verið óhjá­kvæmi­leg til að koma í veg fyrir „yfir­vof­andi árás“ gegn Banda­ríkj­unum, eins og utan­rík­is­ráð­herr­ann Mike Pompeo orð­aði það.

Á síð­ustu árum hafa Banda­ríkja­menn farið í nokkrar áhættu­samar hern­að­ar­að­gerðir til að fella ein­stak­linga sem þeir álíta ógna þjóðar­ör­yggi lands síns. Þeirra á meðal eru árásir á leið­toga hryðju­verka­sam­taka á borð við Al-Qaeda og Ríki íslams.

En stjórn­mála­skýrendur segja morðið á Suleimani af nokkuð öðrum toga

og setji sam­skipti Banda­ríkj­anna og Mið­aust­ur­landa á allt annan stað en hingað til. Nú er ráð­ist gegn emb­ætt­is­manni ríkis og það hern­að­ar­lega sterks ríkis. Enda hefur Aya­tollah Ali Khamenei, æðsti trú­ar­leið­togi Írans, hótað að leita hefnda.

Kjarnorkusamningur stórveldanna við Íran var gerður í tið Baracks Obama.
Kjarn­orku­samn­ingur stór­veld­anna við Íran var gerður í tið Baracks Obama.

Suleimani, sem ólst upp í fátækt og fékk litla form­lega menntun, var í ára­tugi einn áhrifa­mesti maður Írans, bæði í hern­að­ar­legu og póli­tísku til­liti. Hann gekk til liðs við Íranska bylt­ing­ar­vörð­inn (e. Islamic Revolutionary Guards Corps) fljót­lega eftir stofnun hans í kjöl­far írönsku bylt­ing­ar­innar árið 1979 og tók við Quds-sér­sveit­unum á tíunda ára­tug síð­ustu aldar. Þær sveitir störf­uðu við hlið shíta-skæru­liða í Írak eftir inn­rás Banda­ríkj­anna árið 2003. Hann er svo sagður hafa verið lyk­il­maður í þjálfun herja banda­manna, m.a. Íraks og Sýrlands.

Arkítektinn að Sýrlandsstríðinu

Sem yfir­maður Quds-sveit­anna hafði hann yfir­um­sjón með því að fram­fylgja leyni­legum aðgerðum Írana á erlendri grund. Hann studdi hryðju­verka­starf­semi víða, aðstoð­aði m.a. við að und­ir­byggja starf­semi Hezbollah í Líbanon og kom að yfir­töku Hamas á Gaza-svæð­inu. Síðustu ár var hann þekkt­astur fyrir að ráð­ast gegn Ríki íslams, m.a. í þeim til­gangi að styrkja stöðu rík­is­stjórnar Bashar al-Assads, for­seta Sýrlands.

Suleimani var með dyggum stuðn­ingi sínum við Assad af mörgum tal­inn arki­tekt­inn að í hinu hrotta­fengna stríði þar í landi. Þá átti hann einnig sinn þátt í stríðs­á­tök­unum í Jemen. Varn­ar­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna hefur sakað hann og skæru­liða tengda Íran um að hafa drepið mörg hund­ruð banda­ríska her­menn í Írak.

Þrátt fyrir þessi miklu áhrif og aðgerðir Suleimanis í Mið­aust­ur­löndum létu fyrri for­setar Banda­ríkj­anna, George W. Bush og Barack Obama, það vera að ráð­ast gegn honum.

Elissa Slotkin, sem vann sem grein­andi hjá CIA og varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu, bæði undir stjórn Bush og Obama, seg­ist á sínum tíma hafa átt fjöl­mörg sam­töl um hvernig ætti að bregð­ast við ofbeld­is­fullum aðgerðum Suleimanis sem hafi átt sinn þátt í því að valda óstöð­ug­leika um öll Mið­aust­ur­lönd. Nið­ur­staðan hafi ætíð verið sú að árás á hann myndi kalla á hefndir og mögu­lega draga Banda­ríkja­menn inn í frek­ari átök. Það hafi ein­fald­lega ekki þótt rétt­læt­an­legt.

Stefna Banda­ríkj­anna í sam­skiptum við Íran breytt­ist nokkuð undir stjórn Obama. Er kjarn­orku­samn­ingnum var svo náð árið 2015 var ein­fald­lega orðið nokkuð fjar­stæðu­kennt að ráð­ast gegn einum helsta emb­ætt­is­manni lands­ins. Þegar Trump dró Banda­ríkin svo út úr kjarn­orku­samn­ingnum í maí 2018 breytt­ist því margt.

Maður kemur í manns stað

Ali Vaez, sér­fræð­ingur hjá hug­veit­unni Crisis Group, seg­ist efast um að áhrif þess að fella Suleimani verði þau sem banda­rísk yfir­völd von­ist eftir. Í sam­tali við Observer bendir hann á að rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna skil­greini Íranska bylt­ing­ar­vörð­inn sem hryðju­verka­sam­tök. Það var gert í apríl í fyrra. Það að fella leið­toga Quds-sveit­anna, sem eru áhrifa­mesta deildin innan bylt­inga­varð­ar­ins, þýði ekki endi­lega að þær verði óstarf­hæfar. „Ég held að það verði erfitt að finna mann í stað [Suleimanis] en það er ekki ómögu­legt,“ segir Vaez.

David Schanzer, sér­fræð­ingur Duke-háskóla í hryðu­verka­starf­semi, er einn þeirra sem telur að morðið á Suleimani sýni ekki styrk Trumps og hans banda­manna heldur þvert á móti veik­leika. „Ákvörðun Trumps að magna fjand­semi með því að drepa Qassem Suleimani sýnir að stefna hans í sam­skiptum við Íran mis­heppn­að­ist.“

Og við­brögðin í Íran og Írak hafa ekki látið á sér standa. Á laug­ar­dag fjöl­mennti fólk á götum Bagdad og mót­mælti aðgerðum Banda­ríkj­anna harð­lega. Í dag streymdu þús­undir út á götur í Teheran vegna útfarar Suleimanis. Banda­ríkja­menn í Írak hafa verið hvattir til að yfir­gefa landið og verð á olíu hækk­aði skarpt eftir árás­ina. Svar banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins hefur m.a. verið það að til­kynna að her­mönnum í Mið­aust­ur­löndum verði fjölgað um 3.500. Íranir hafa hótað hefndum og íraska þingið vill her­afla Banda­ríkj­anna burt frá land­inu.

Margir ótt­ast stríð.

„Það er ekki hægt að ofmeta áhrifin,“ sagði David Petraeus, fyrr­ver­andi yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar CIA, og fyrr­ver­andi hers­höfð­ingi í Írak. „Brugðist verður við í Írak og lík­lega í Sýrlandi og ann­ars staðar á svæð­inu.“

Trump hefur svarað með sínum hætti. Segist ekki telja það „góða hug­mynd“ hjá Íran að fara í stríð. Slíkt myndi ekki vara lengi. „Vil ég [fara í stríð]? Nei. Ég vil frið. Ég kann vel við frið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár