Boðar Guðlaug Þór á fund utanríkismálanefndar

Þing­maður VG vill ræða hvaða stefnu og sýn íslensk stjórn­völd hafi á ástandið milli Írans og Banda­ríkj­anna og hvort utan­rík­is­ráð­herra hafi verið í sam­skiptum við banda­rísk stjórn­völd eða önnur stjórn­völd vegna árás­ar­innar á Suleimani.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og vara­for­maður utan­rík­is­mála­nefndar, hefur kallað eftir því að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra komi sem fyrst á fund utan­rík­is­mála­nefndar þings­ins til að ræða ástandið milli Írans og Banda­ríkj­anna.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu þing­manns­ins.

Þá vill hún að á fund­inum verði rædd áhrif gagn­kvæmra árása á svæðið, hvaða stefnu og sýn íslensk stjórn­völd hafi á málið, mögu­lega fram­vindu og þá áhrif. Enn fremur hvort utan­rík­is­ráð­herra hafi verið í sam­skiptum við banda­rísk stjórn­völd eða önnur stjórn­völd vegna árás­ar­innar á hers­höfð­ingj­ann Qassem Suleimani, og þá hver þau sam­skipti hafi verið.

Ísland verður að taka afdráttarlausa afstöðu

„Nýtt ár sem byrjar með gagn­kvæmum árásum og hót­unum milli Banda­ríkj­anna og Írans veldur ugg og óvissu um afleið­ingar stór­karla­legra upp­hrópana. Þetta er ekki ein­faldur leikur karla sem fela sig á bak­við Twitter, heldur snýst um líf venju­legs fólks sem verður alltaf mest fyrir barð­inu á öllu stríðs­brölti,“ skrifar Rósa Björk.

Þá telur hún að Ísland verði að taka afdrátt­ar­lausa afstöðu gegn hót­unum um stríð og hern­að­ar­árásum á svæð­inu, svæði þar sem við­kvæmt stjórnmala­á­stand geti breyst í púð­ur­tunnu á skömmum tíma með til­heyr­andi afleið­ingum. „Líka á utan­rík­is­stefnu Íslands eins og við þekkjum af bit­urri reynslu. Og alveg sér­stak­lega þegar æðsti valda­maður Banda­ríkj­anna er jafn óáreið­an­legur, hvat­vís og ótraustur og raunin er núna,“ skrifar hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár