Fjórar ástæður fyrir hrapi þýska íþróttarisans Adidas í Bandaríkjunum

Þýski íþrótta­vörurisinn Adidas er í vandræðum. Sala á Adidas-vörum hefur dregist saman í Norður-Ameríku síðastliðinn þrjú ár og efasemdir eru byrjaðar að skjóta rótum á meðal fjárfesta fyrir­tækisins vegna slakrar frammistöðu stjórnar Adidas, að því er fram kemur í umfjöllun The Wall Street Journal. Hlutabréf í þýska íþrótta­vörurisanum féllu um hátt í fjörutíu prósent á síðasta ári.

Adidas var lengi vel einn helsti keppinautur bandaríska íþrótta­vörurisans Nike, en á síðasta ári skaut fyrir­tækið Under Armour Adidas ref fyrir rass, og skellti sér upp í annað sætið á eftir Nike.

En hvað veldur falli Adidas? Frétta­vefurinn Business Insider tók saman fjórar ástæður fyrir hrapi þýska sportvöru­risans.

1. Fyrirtækið missti tengsl við viðskiptavini sína í Ameríku


Í umfjöllun Business Insider er haft eftir eig­anda tísku­keðj­unnar Nohble í New York, sem sér­hæfir sig í götu­tísku, að Adidas hafi hætt að hlusta á ráð­gjöf sölu­að­ila um hvernig tísku­vörur væru lík­legar til vin­sælda í Banda­ríkj­unum.

Samkvæmt umfjöllun The Wall Street Journal reynir nú Adidas að hleypa „bandarískum áhrifum“ inn í vörurnar sínar. „Hugarfar í Banda­ríkjunum er töluvert frábrugðið því þýska,“ er haft eftir Mark King, forstjóra Adidas í Norður-Ameríku, í umfjöllun The Wall Street Journal. „Í því fellst uppljómunin.“

2. Adidas tapaði stórum samningum til Nike


Á níunda ára­tugnum tók Adidas þá afdrifa­ríku ákvörðun að ganga ekki til samn­inga við ungan efni­legan körfu­bolta­mann, sem ákvað þá að skrifa undir samn­ing við helsta keppi­naut þýska sport­vöruris­ans, Nike. Ungi körfu­bolta­mað­ur­inn hét þá og heitir enn Michael Jordan. Samkvæmt umfjöllun The Wall Street Journal fannst for­svars­mönnum Adidas Jordan vera of lág­vax­inn til að hann gæti orðið vin­sæll á meðal körfu­bolta­á­huga­manna.

Þrjátíu árum síðar aflar Jordan vöru­merkið enn milljarða dala tekna fyrir Nike árlega, jafnvel þó Michael Jordan hafi hætt að hafa körfu­bolta að atvinnu fyrir meira en tíu árum síðan.

Þar að auki er Nike með mun fleiri bandaríska íþrótta­menn en Adidas á sínum snærum.

3. Afgreiðslutími Adidas er allt of hægur


Meðal afgreiðslu­tími Adidas frá hönnun til búðar er um átján mán­uðir, sem gerir fyr­ir­tæk­inu nær ókleyft að tappa inn á tísku hvers tíma því við­bragðs­tím­inn er svo hægur, að því er fram kemur í umfjöllun The Wall Street Journal.

Adidas vinnur nú hörðum höndum að því að stytta afgreiðslu­tímann.

4. Adidas borgaði allt of mikið fyrir Reebok


Þýski íþrótta­vöruris­inn greiddi 3,8 millj­arða Banda­ríkja­dala fyrir íþrótta­vöru­merkið Reebok árið 2005. „Um leið og við fórum að skoða töl­urnar, þá upp­götv­uðum við að rekstur Reebok var ekki góður og að við höfðum greitt of mikið,“ segir fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður hjá Adidas í sam­tali við The Wall Street Journal.

Rekstur Reebok var í járnum þegar Adidas ákvað að kaupa íþrótta­vöru­fyrirtækið, sem helst er þekkt fyrir að bjóða upp á körfuboltaskó á níunda­áratugnum sem hægt var að blása upp. Þá var fyrir­tækið lengi vel einn helsti styrktar­aðili enska knattspyrnu­liðsins Bolton Wanderers.

Kaupin reyndust Adidas afar þungbær og sköðuðu fyrir­tækið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár