Frakkar og Þjóðverjar leggja stein í götu David Cameron

Frakkar og Þjóð­verjar hafa gert með sér samkomulag sem miðar að enn þéttara stjórnmála­sambandi á evru­svæðinu án þess að ráðist verði í breytingar á sáttmálum Evrópu­sambandsins. Þetta er áfall fyrir David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, sem vill reyna að ná fram breytingum á sátt­málunum fyrir þjóðar­atkvæða­greiðslu um áfram­haldandi veru í sambandinu, sem hann hefur lofað bresku þjóðinni.

Guardian hefur eftir franska blaðinu Le Monde að Frakkar og Þjóð­verjar muni leggja fram sínar breytinga­tillögur fyrir leiðtoga­fund í Brussel í júní, en á sama fundi ætli Cameron að kynna lista sinn yfir breytingar sem hann krefst fyrir hönd Breta. Cameron hefur ítrekað talað fyrir því að sáttmálar ESB verði teknir til endur­skoðunar, þannig að evru­svæðið geti þétt sínar raðir en Bretar geti breytt sínu sambandi við ESB. Búist er við því að tillögur Frakka og Þjóðverja verði samþykktar á leiðtoga­fundinum, og það muni loka algjör­lega á tilraunir Cameron til að fá sáttmála tekna upp.

David Cameron er á leið til funda við bæði frönsk og þýsk stjórn­völd í lok vikunnar. Hann er nú kominn í kosninga­baráttu fyrir þjóðar­atkvæða­greiðsluna sem hann hefur lofað að halda. Í gærkvöldi tók hann á móti forseta framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, Jean-Claude Juncker. Að sögn talsmanns forsætis­ráðuneytisins ræddu þeir þessi mál og Juncker hafi sagst vilja finna sann­gjarna lausn fyrir Breta.

Á fimmtudag heldur hann til megin­landsins og mun hitta forsætis­ráðherra Danmerkur, Hollands og Frakk­lands. Á föstudag ætlar hann að funda með forsætis­ráðherra Póllands áður en hann fundar með kanslara Þýska­lands. Hann stefnir að því að hitta leiðtoga allra Evrópu­sambands­ríkjanna áður en að leiðtoga­fundinum kemur í lok júní.

Í milli­tíðinni verður drottningar­ræða forsætis­ráðherrans flutt og búist er við því að útskýrt verði fyrir bresku þjóðinni hvernig þjóðar­atkvæða­greiðslan fari fram og hvernig verði spurt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár