Kara Connect lýkur 160 milljóna króna fjármögnun

Nýsköpunar­sjóður atvinnu­lífsins kemur nú inn sem nýr fjár­festir og eignast 10% hlut í félaginu. Allir fyrrum fjár­festar taka einnig þátt og auk þess bætast við nýir sænskir fjár­festar, félögin Poleved Industrial Performance AB og Skogsliden Finance AB.

Hilmar Geir Eiðsson, tæknistjóri og meðstofnandi Köru Connect, Huld Magnúsdóttur, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Kara Connect.
Hilmar Geir Eiðsson, tækni­stjóri og með­stofn­andi Köru Connect, Huld Magn­ús­dóttur, fram­kvæmda­stjóri Nýsköp­un­ar­sjóðs atvinnu­lífs­ins, og Þorbjörg Helga Vig­fús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri og stofn­andi Kara Connect. Mynd: Aðsend mynd

Kara Connect ehf. hefur lokið 160 milljóna króna fjár­mögnun með aðkomu Nýsköpunar­sjóðs atvinnu­lífsins og tveggja sænskra einka­fjárfesta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrir­tækinu.

Kara Connect er stafræn vinnustöð sem gerir sérfræðingum í heil­brigðis,- velferðar- og mennta­geiranum kleift að veita skjólstæðingum þjónustu og straum­línulaga rekstur sinn.

Í tilkynningunni segir að um sé að ræða aðra fjár­mögnun félagsins. Fyrir ári síðan hafi Crowberry Capital fjárfest í Kara Connect sem hafi gert teyminu kleift að einbeita sér að þróun hugbúnaðarins með öryggismál að leiðar­ljósi. „Kara er eini íslenski hugbúnaðurinn fyrir sérfræðinga sem er samþykktur af Land­læknis­embættinu þegar litið er til gagna­vistunar og fjarfunda­samskipta við skjólstæðinga.“

Nýsköpunar­sjóður atvinnu­lífsins kemur nú inn sem nýr fjár­festir og eignast 10 prósent hlut í félaginu. Allir fyrrum fjár­festar taka einnig þátt og auk þess bætast við nýir sænskir fjár­festar, félögin Poleved Industrial Performance AB og Skogsliden Finance AB.

700 sérfræðingar nýta sér Köru

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmda­stjóri og stofnandi Kara Connect, segir við tilefnið að fjár­mögnun með aðkomu þessara sterku fjárfesta skipti miklu máli fyrir félagið og gefi frábæru teymi tækifæri til að stækka, sérstak­lega í sölu- og markaðs­málum, samhliða vexti í Danmörku. „Íslenski markaðurinn hefur tekið hratt við sér og mörg spennandi og framsýn verkefni grundvölluð á kerfi Köru verða brátt sýnileg.“

Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að hátt í 700 sérfræðingar nýti sér Köru fyrir bakvinnslu, greiðslur og öryggismál, og samtímis stórauki Kara aðgengi skjólstæðinga að sérþekkingu þeirra. Sérfræðingar nýti Köru til að skrá og byggja yfirlit um hefð­bundna fundi, fjarfundi og spjall­fundi. Tugþúsundir fjarfunda hafi farið fram nú þegar og hafi heildar­fjöldi notenda meira en tvöfaldast frá áramótum og telur nú yfir 4.300.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár