Ríkislögmaður víkur sæti í bótamáli

Sátta­nefnd í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu vinnur með rík­is­lög­manni við að semja um bóta­greiðslur til þeirra sem voru sýkn­aðir. Rík­is­lög­maður er hins vegar van­hæfur vegna aðkomu föður hans að rann­sókn máls­ins og því hefur nýr verið settur.

Einar Karl Hall­varðs­son rík­is­lög­maður er van­hæfur til að koma að bóta­máli þeirra sem sýkn­aðir voru í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Ástæðan er sú að faðir hans Hall­varður Ein­varðs­son var vara­rík­is­sak­sókn­ari þegar rann­sókn á mál­unum hófst í kringum ára­mótin 1975-76. Hann hefur því vikið sæti í bóta­mál­inu og Andri Árnason lög­maður hefur verið settur rík­is­lög­maður í hans stað í mál­inu. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

End­ur­upp­töku­nefnd féllst í febr­úar í fyrra á að dómur Hæsta­réttar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu sem felldur var árið 1980 skyldi tek­inn upp hvað varð­aði fimm sak­born­inga af sex. End­ur­upp­töku­beiðni Erlu Bolla­dóttur var hins vegar hafn­að. Þann 27. sept­em­ber síð­ast­lið­inn voru fimm­menn­ing­arnir sýkn­aðir í Hæsta­rétti.

Í byrjun októ­ber skip­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sátta­nefnd fyrir hönd stjórn­valda til að leiða sátta­við­ræður við fyrr­ver­andi sak­born­inga. Nefnd­ina skipa Kristrún Heim­is­dóttir lög­fræð­ing­ur, en hún mun sitja sem full­trúi for­sæt­is­ráðu­neytis og for­maður nefnd­ar­inn­ar, Bryn­dís Helga­dóttir skrif­stofu­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu og Magnús Óskar Haf­steins­son sér­fræð­ingur í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Rík­is­lög­maður vinnur að mál­inu ásamt sátta­nefnd­inni þar sem hún hefur ekki umboð lögum sam­kvæmt að semja um greiðslur úr rík­is­sjóði.

Katrín segir við Frétta­blaðið að van­hæfi Einars Karls hafi legið fyrir frá önd­verðu og ekki verið umdeilt af hálfu neins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár