,,Íslendingar fastir í kerfi sem veldur loftslagsbreytingum“

Ragna Benedikta Garðars­dóttir, prófessor í sálfræði, segir erfitt að breyta neyslu­hegðun fólks sem búi við kerfi sem stöðugt hvetji það til að kaupa meira en ástæða sé til. ,,Ef þú grillar þér hamborgara ertu ekki endilega að tengja það við það að barna­barnið þitt eigi eftir að lifa í erfiðari heimi,“ segir hún. Brynhildur Péturs­dóttir, framkvæmda­stjóri Neytenda­samtakanna, segir að fólk vanmeti enn þá vá sem mannkynið standi frammi fyrir.

Föt sem komust ekki fyrir í fatagámi
Föt sem komust ekki fyrir í fatagámi Árið 2021 fékk Rauði kross­inn 2.300 tonn af textíl frá heim­ilum lands­ins. Mynd: Sara G. Amo

„Ég á sjálf mjög erfitt með að réttlæta alla þessa neyslu en ég vil ekki heldur dæma fólk of harkalega því að við erum öll föst í þessari heimsmynd og það er erfitt að sjá leið út úr henni,“ segir Ragna Benedikta Garðars­dóttir, prófessor í sálfræði, sem rannsakað hefur eðli og afleiðingar neyslu­samfélaga.

Það kemur hvorki henni né Brynhildi Péturs­dóttur, framkvæmda­stjóra Neytenda­samtakanna, sem einnig situr í Loftslags­ráði, á óvart að Íslendingar séu neyslu­frekasta þjóðin á Norður­löndum eins og bráðabirgða­niðurstöður rann­sóknar sem enn er í vinnslu sýna, en Stundin fékk að birta þær í blaðinu. Jukka Heinonen, prófessor við umhverfis- og bygginga­verkfræði­deild HÍ, sem fer fyrir hópi rann­sakendanna, segir að á alþjóða­vísu sé neysla Íslendinga að meðaltali tvisvar til þrisvar sinnum meiri en annarra þjóða. Hann segir að við séum komin „ískyggilega nálægt þeim mörkum að ekki verði aftur snúið“. Grunn­vandinn sé lífsstíll fólks í ríkustu samfélögunum.

…
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ólafur Kristófersson skrifaði
    Neyslubrjálæðið á Íslandi fer stöðugt versnandi. Einn sökudólgur þess er auglýsingadraslið. Það er varla hægt að draga andann án þess að fá yfir sig flóð af auglýsingakjaftæði. Ef heimurinn ætlar að stoppa þessa viiðbjóðslegu hagvaxtardellu og kapítalisma, þarf að taka harkalega í handbremsuna. Það verður ekki gert með hinum úrelta krossaskrípaleik sem tíðkaður er í vestrænum löndum á fjögurra ára fresti.
    1
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Ég er sannfærður um það að því lengri tími sem líður þar til kapítalisminn verður aflagður, sem hættulegt efnahagslegt kerfi, því meiri líkur eru á því að allt fari á versta veg; á versta veg fyrir mannkynið og lífríki jarðar í þeirri mynd sem það nú er.

    Draumur þeirra sem aðhyllast þetta hættulega kerfi og þeirra sem geta eða vilja ekki segja upp hlutverki sínu sem þrælar kerfisins (kallaðir 'neytendur' af kerfinu, því það hljómar betur en orðið 'þræll') um að hægt sé að umbreyta kapítalismanum í endurbætta útgáfu sem yrði vinsamlegt lífinu og náttúrunni, er kjánalegur og hlægilegur.

    Það verður að afleggja þetta skíta-kerfi. Það er eina vonin, en sú von er gríðarlega veik, að mínu mati. Ég er svartsýnn á að það gerist nægileg tímanlega. Það verður gert þegar valdhafar heimsins sjá að annað er ekki hægt en þá verður það trúlega orðið of seint.
    3
  • BH
    Bjarki Hilmarsson skrifaði
    Ég mæli með þessu video sem útskýrir hvernig olíufélögin nota þetta til að leiða athyglina frá sér https://youtu.be/1J9LOqiXdpE
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár