„Almenningssamgöngum er ekki ætlað að koma út í plús“

Fulltrúi Reykja­víkurborgar í stjórn Strætó bendir á það í samtali við Kjarnann að almennings­samgöngur séu fjár­festing samfélagsins, sem eigi ekki að skila hagnaði, heldur ágóða í formi minni mengunar, bættrar umferðar og þjónustu fyrir fólk.

Alexandra Briem borgarfulltrúi Pírata og fulltrúi borgarinnar í stjórn Strætó.
Alex­andra Briem borg­ar­full­trúi Pírata og full­trúi borg­ar­innar í stjórn Strætó. Mynd: Arnar Þór

„Tap Strætó aldrei verið meira“, „Strætó tapaði 600 milljónum á hálfu ári“, „Strætó aldrei tapað jafn miklu“ og „Strætó tapar 100 milljónum á mánuði“.

Svona hljóðuðu fyrir­sagnir nokkurra fjölmiðla í síðustu viku, í kjölfar þess að rekstrar­niðurstaða Strætó á fyrstu sex mánuðum ársins rataði í fréttir.

Eins og Kjarninn sagði frá telur Strætó sig þurfa 750 milljóna króna auka­framlag frá eigendum sínum, sveitar­félögunum á höfuð­borgar­svæðinu, til þess að koma rekstrinum á réttan kjöl.

Samkvæmt fjárhags­áætlun Strætó fyrir 2022 er gengið út frá því að sveitar­félögin setji rúma 4,16 milljarða króna í reksturs Strætó á þessu ári, auk þess sem ríkið veiti 909 milljónum króna inn í reksturinn, sem er svipuð upphæð og komið hefur frá ríkinu til rekstrar Strætó síðan árið 2012.

Ef aukið framlag fæst frá eigendum, eins og Strætó gerir sér vonir um, munu opinber útgjöld til almennings­samgöngu­fyrir­tækisins því alls nema 5,82 milljörðum króna á þessu ári. Það yrði þannig heildar­gjaldið sem samfélagið á endanum greiðir fyrir almenna þjónustu gulu vagnanna, fyrir utan það framlag sem sveitar­félög standa straum af vegna Pant, sem annast ferða­þjónustu fatlaðra.

Í þessu ljósi eru fréttir af mettapi Strætó ef til vill ekki mjög upplýsandi, þar sem eins og í öðrum opinberum rekstri þýðir tapið ekki annað en það að áætlanir sem lagt var upp með hafa ekki staðist.

Í tilfelli Strætó er kórónu­veiru­faraldurinn enn að hafa áhrif. Kjarninn ræddi þessi mál við Alexöndru Briem borgar­fulltrúa Pírata og fulltrúa Reykja­víkurborgar í stjórn Strætó á dögunum.

„Það er bara þannig að reksturinn á Strætó hefur verið erfiður í COVID og við fengum ekki þann stuðning sem við gerðum ráð fyrir frá ríkinu vegna COVID-aðgerða,“ segir Alexandra, en í fjárhags­áætlun Strætó fyrir árið 2021 var gert ráð fyrir 1,8 milljarða framlagi frá ríkinu. Þegar upp var staðið varð framlag ríkisins hins vegar rétt rúmur milljarður.

Almenningssamgöngum ætlað að búa til samfélagslegan ágóða

Alexandra segir að fyrir liggi að brúa þurfi það bil með einhverjum hætti. „Þá er um að ræða skuld­setningu, að draga úr þjónustu eða að fá meira fé frá sveitar­félögunum og við erum ekki spennt fyrir því að draga úr þjónustu eða fara í svo mikla skuld­setningu fyrir rekstri,“ segir Alexandra.

Hún bendir á það, í samtali við Kjarnann, að rétt eins og ýmis önnur þjónusta sem hið opinbera veitir er almennings­samgöngum „ekki ætlað að koma út í plús, þeim er ætlað að búa til samfélags­legan ágóða.“

„Þeim er ætlað að draga úr mengun, draga úr traffík og bæta lífið. Það er ekki hægt að gera þá kröfu að þær séu reknar á núlli,“ segir Alexandra, en bætir við að á sama tíma þurfi að stilla reksturinn af með framlögum og að ríkið og sveitar­félögin þurfi að „vera skýr á því hverjar þeirra væntingar eru til þess að standa í þessum rekstri.“

Hún segir ekki útséð með hvernig samtal eigenda um fjárþörf Strætó muni lykta og spurð hvort útilokað sé að Strætó verði gert að draga saman seglin segir Alexandra:

„Auðvitað get ég ekki útilokað neitt, en ég get ekki séð að Reykja­víkurborg myndi vilja fara þá leið. Það er bara vitað að það er mjög auðvelt að missa fólk frá Strætó þegar þjónusta er dregin saman og það tekur langan tíma að fá fólk til baka þegar þjónustan batnar. Það er dýrt skref út frá grund­velli hugmyndarinnar á bak við Strætó að fara í einhverjar þjónustu­skerðingar.“

Hún bætir því við að hún telji að svigrúm Strætó til þess að hagræða í rekstrinum sé orðið lítið. „Það sem hvílir þungt á Strætó núna er það að í COVID dróst notkunin alveg gríðar­lega mikið saman,“ segir Alexandra og bætir því við að Strætó hafi átt von á að fá meiri stuðning frá ríkinu þar sem tekju­fallið fyrir­tækisins hafi verið vegna opinberra sóttvarna­ráðstafana, en ekki einhvers sem Strætó eða eigendur félagsins gátu stjórnað.

Framlög ríkisins voru hins vegar sambærileg svipuð árin 2020 og 2021 og þau hafa verið á ári hverju frá 2012, er sérstakur samningur um aukinn hlut almennings­samgangna á höfuð­borgar­svæðinu var undir­ritaður. Þau framlög hafa ekki hækkað í takti við verðlag síðan þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár