Sendiráð Íslands í Moskvu búið að gefa út 125 áritanir til rússneskra ferðamanna frá innrás

Frá því að rússneskur herafli réðist inn í Úkraínu í febrúar og fram í byrjun september veitti íslenska sendi­ráðið í Moskvu 125 rússneskum ferða­mönnum skammtíma­áritanir inn á Schengen-svæðið. Það er einungis brot af fjöldanum sem fékk áritanir árið 2019.

Sendiráð Íslands í Moskvu.
Sendiráð Íslands í Moskvu. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Frá innrás rússneska hersins í Úkraínu 24. febrúar og fram til 8. september gaf sendiráð Íslands í Moskvu út 125 skammtíma­áritanir inn á Schengen-svæðið til rússneskra ríkis­borgara. Þetta kemur fram í skriflegu svari utan­ríkis­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans.

Í svari ráðuneytisins segir að hafa beri í huga að þessi tala jafngildi ekki þeim fjölda rússneskra ferða­manna sem kann að hafa komið til Íslands á þessu tímabili, m.a. vegna þess að einhverjir ferðamenn sem hafa haft gilda áritun til annars Schengen-ríkis gætu hafa haft viðdvöl hér á landi.

Fjöldi útgefinna áritana frá þessu sama tímabili árið 2019, síðasta árið áður en COVID-faraldurinn skall á, en þá gaf sendiráð Íslands í Moskvu út alls 2.167 skammtíma­áritanir inn á Schengen-svæðið.

Sum Schengen-ríki ætla að loka á rússneska ferðamenn

Á undan­förnum vikum hefur verið lagt til á vettvangi Evrópu­sambandsins að gera það bæði erfiðara og dýrara fyrir rússneska ferðamenn að ferðast til Evrópu, en pólitískur vilji var til þess á utan­ríkis­ráðherra­fundi sambandsins sem fram fór 31. ágúst síðastliðinn.

Í kjölfarið lagði framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins fram tillögu þann 6. september um að gildandi samningi við Rússland um útgáfu Schengen-áritana yrði rift. Samkvæmt umfjöllun vefritsins SchengenVisaInfo fela tillögurnar í sér að rússneskir ferðamenn munu þurfa að greiða meira fyrir áritanir, 80 evrur í stað 35 evra áður, hámarks­tíminn sem umsóknir eiga að taka verði lengdur úr 10-15 dögum í 45 daga, erfiðara verði að fá áritanir sem gilda til fleiri en einnar ferðar inn á Schengen-svæðið og umsækjendur þurfi að framvísa fleiri gögnum.

Nokkur ríki hafa ákveðið að ganga lengra, og frá og með 19. september ætla Eystrasalts­ríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litáen, auk Póllands, að hætta tíma­bundið að afgreiða vegabréfs­áritanir inn á Schengen-svæðið til rússneskra ferða­manna og meina Rússum aðgang að ríkjunum.

Finnskar sendiskrifstofur afgreiða 10 prósent af því sem þær áður gerðu

Finnland hefur líka þegar gripið til þess ráðs að fækka útgefnum vegabréfs­áritunum til rússneskra borgara um 90 prósent, og hafa sendi­skrifstofur Finnlands einungis afgreitt um 100 umsóknir um Schengen-áritanir frá 1. september. Áður en þessar hömlur voru settar á afgreiðslu umsókna þaðan voru um 1.000 manns að fá áritanir þar á degi hverjum. Rússar geta einungis sótt um áritanir hjá finnsku sendi­skrif­stofunum á mánudögum.

Pekka Haavisto, utan­ríkis­ráðherra Finnlands, útskýrði ákvörðun stjórn­valda með þeim hætti að Finnland vildi ekki verða viðkomu­staður rússneskra ferða­manna sem vildu komast til annarra ríkja.

„Þeir koma til Helsinki-flug­vallar og fara beint í frí annars staðar. Það er ekki hlutverk sem Finnland vill gegna,“ sagði Haavisto við finnska ríkis­miðilinn Yle.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár