SFS segja fríverslunarsamning við Breta vonbrigði

Ísland hefði átt að sækjast eftir auknum markaðs­aðgangi í Bretlandi í nýsamþykktum fríverslunar­samningi, að mati framkvæmda­stjóra SFS.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS Mynd: Kjarninn.

Heiðrún Lind Marteins­dóttir, framkvæmda­stjóri SFS, segir nýsamþykktan fríverslunar­samning Bretlands við Ísland vera vonbrigði, þar sem ekki var sóst eftir því að bæta markaðs­aðgang á unnum fiski í Bretlandi.

Í tilkynningu sem send var á fjölmiðla í morgun segir Heiðrún að nýleg tíðindi um að fríverslunar­samning við Bretland hafi heilt yfir verið ánægjuleg, þar sem Bretar séu mikil vinaþjóð þar sem markaðs­aðgangur fyrir vörur frá Íslandi hafi verið með ágætum. Samkvæmt Heiðrúnu hefði þó mátt ætla að þunginn í viðræðum við Breta um fríverslun væri í sjávar­afurðum, þar sem 60 prósent af vöru­útflutningi til Bretlands samanstendur af þeim.

Þar telur hún að aukin áhersla og metnaður Íslendinga á vinnslu sjávar­afurða ætti að hafa kallað á endur­skoðun á gildandi markaðs­aðgangi þar. Raunin sé sú að háir tollar á einstaka sjávar­afurðir, líkt og lax, karfa og ýmsa flatfiska, hamli því verulega að vinnsla þeirra sé möguleg hér á landi.

„Þessu hefði verið hægt að breyta með betri markaðs­aðgangi gagnvart Bretlandi. Í þeim fríverslunar­samningi sem var undir­ritaður var þetta, einhverra hluta vegna, ekki sótt,“ segir Heiðrún í yfir­lýsingu sinni. „Tækifærin voru ekki gripin. Að þessu leyti veldur samningurinn vonbrigðum. Verðmæti, sem hægt hefði verið að sækja með bættum tolla­kjörum, verða ekki til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár