Lilja skipaði aðstoðarmann sinn í stjórn Íslandsstofu

Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra skip­aði Hrannar Pét­urs­son, aðstoð­ar­mann sinn, í stjórn Íslands­stofu í síð­ustu viku. Hún seg­ist hafa litið þannig á málið að Hrannar væri besti mað­ur­inn sem til boða stæði í stöð­una. „Þegar ég fékk Hrannar í ráðu­neytið þá var það á fag­legum en ekki póli­tískum for­sendum. Hann er ekki flokks­bund­inn Fram­sókn­ar­maður og hefur engum skyldum að gegna gagn­vart flokknum.“ Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Hlutverk Íslands­stofu er meðal ann­ars að vera sam­ráðs­vett­vangur stjórn­valda og atvinnu­lífs­ins fyrir mark­aðs- og kynn­ing­ar­starf á erlendri grund. Greint var frá nýrri stjórn síð­ast­lið­inn fimmtu­dag sem á að sitja næstu þrjú árin og kom þá í ljós að Hrannar, sem bauð sig fram til for­seta Íslands í sumar en dró svo fram­boð sitt til baka, væri einn þeirra sem skip­aður hafði verið. Utan­rík­is­ráð­herra skipar fjóra stjórn­ar­menn eftir til­nefn­ingu Samtaka atvinnu­lífs­ins, einn eftir til­nefn­ingu iðn­að­ar­ráð­herra, einn eftir til­nefn­ingu mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og einn án til­nefn­ingar. Því er ljóst að Hrannar er sá sem skip­aður var án til­nefn­ingar. Hrannar var ráð­inn aðstoð­ar­maður Lilju í byrjun maí 2016. Lilja segir ekki tíma­bært að ræða hvort Hrannar verði áfram aðstoð­ar­maður hennar ef hún sitji áfram í ráð­herra­stól eftir kosn­ingar.

Í Frétta­blað­inu segir Lilja að Hrannar hafi gíf­ur­lega reynslu á þessu sviði og því væri hann besti mað­ur­inn sem til boða stæði í stöð­una. Hrannar er fé­lags­fræð­ingur og var um tíma sjón­varps­frétta­maður fyrir tæpum tveimur ára­tugum en hefur síðan mest starfað við upp­lýs­inga- og sam­skipta­mál, fyrst hjá ISAL sem á og rekur álverið í Straums­vík og síðar fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Voda­fone þar sem hann stýrði einnig mannauðs-, mark­aðs- og lög­fræði­mál­um. Þá starf­aði hann sem verk­efn­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­i Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar þar til í nóv­em­ber 2015.

Hrannar er ekki eini aðstoð­ar­maður ráð­herra sem situr í stjórn stofn­ana eða fyr­ir­tækja í eigu rík­is­ins. Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar, situr til að mynda í stjórn Íslands­pósts, og Matthías Imsland, aðstoð­ar­maður Eyglóar Harð­ar­dóttur og áður Sig­mundar Davíð Gunn­laugs­sonar, situr í stjórn Isavia. Þá situr Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir, aðstoð­ar­maður Gunnars Braga Sveins­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, í stjórn Matís ohf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár