Það áttu allir eitthvað í honum

Einar Örn Magnússon, langafa­barn Ragga Bjarna, minnist hans með hlýju og þakklæti. Yfir sextíu ára aldurs­munur á þeim lang­feðgunum kom ekki í veg fyrir að á milli þeirra varð djúp vinátta og Einar segist hafa lært mikið af langafa sínum í leik og starfi. Raggi var mikill fjölskyldu­maður og elskaði rjóma.

Í faðmi fjölskyldunnar
Í faðmi fjöl­skyld­unnar Lang­feðgarnir sungu og spil­uðu saman, bæði opin­ber­lega og við ýmis per­sónu­leg tæki­færi, einkum í reglu­legum pönnu­köku­boðum á heim­ili for­eldra Einars þar sem hann segir að langafi sinn hafi verið óspar á rjómann á pönnu­kök­urnar, enda mik­ill sæl­keri. Mynd: Aðsend

Ragnar Bjarnason. Raggi Bjarna. Hann stóð á sviðinu í meira en sjö áratugi, skemmti, gladdi, söng og spilaði. Í fari hans bjó eitthvað óútskýranlegt sem gerði það að verkum að allri íslensku þjóðinni fannst að hún hefði misst einhvern nákominn þegar fregnir bárust af andláti hans 25. febrúar síðastliðinn. 

Einar Örn Magnússon, laganemi í Háskóla Íslands og barna­barnabarn Ragga, segir að hreinskilni og einstök hlýja hafi einkennt langafa hans. „Hann var svo hrein­skilinn. Þess vegna náði hann svona vel til fólks,“ segir Einar. Þeir lang­feðgarnir sungu og spiluðu saman, bæði opinber­lega og við ýmis persónuleg tækifæri, meðal annars í reglu­legum pönnuköku­boðum á heimili foreldra Einars þar sem hann segir að langafi sinn hafi notið sín vel og verið óspar á rjómann á pönnu­kökurnar. „Hann var mikill sælkeri, hann „lá í rjómanum“ og elskaði að vera með fjöl­skyldunni.“ 

Einar, sem er 21 árs, segir að 64 ára aldurs­munur hafi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár