Wayne Rooney sleginn í rot heima hjá sér - myndband

Enski lands­liðs­maðurinn og framherji Manchester United, Wayne Rooney, var sleginn í rot í eldhúsinu heima hjá sér á dögunum, þegar hann og Phil Bardsley, bakvörður enska úrvals­deildar­liðsins Sunderland, öttu kappi í hnefa­leikum.

Enska slúður­blaðið The Sun greinir frá málinu. Atvikið, sem var fest á myndband, átti sér víst stað eftir leik Manchester United gegn Swansea í ensku úrvals­deildinni í febrúar.

Þar sést hvar sem fyrrum liðs­félagarnir skiptast á höggum íklæddir hnefaleika­hönskum, að því er virðist í gamni til að byrja með, sem svo endar með því að Bardsley veitir enska lands­liðs­manninum þungt vinstri handar högg, með þeim afleiðingum að Rooney fellur til jarðar eins og trédrumbur.

Frétt Sun hefur vakið mikla athygli, og ekki síst á meðal íþrótta­fréttamanna sem segja mikið mildi að ekki fór verr, því á mynd­bandinu sést hvernig Rooney fellur til jarðar á marmara­gólf og sleppur naumlega við að detta með höfuðið á eldhús­innréttingu.

Þá hafa margir hneykslast á athæfi mannanna í breskum fjöl­miðlum, og telja að atvikið hefði getað kostað eina skærustu knattspyrnu­stjörnu Englendinga lífið. Þá má geta þess að Rooney er með rúmar 62 milljónir íslenskra króna í laun á viku hjá Manchester United. Þá velta margir fyrir sér hver viðbrögð Louis van Gaal, þjálfara Manchester United, og Roy Hodgson, þjálfara landsliðs Englands, verða.

Sjón er sögu ríkari, en hægt er að horfa á mynd­bandið hér að neðan. Athugið að í mynd­bandinu kemur fyrir ofbeldi, sem ekki er við hæfi viðkvæmra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár