Rússar lækka stýrivexti niður í fjórtán prósent

Seðla­banki Rússlands ákvað í morgun að lækka stýri­vexti í 14 prósent, eða um eitt prósentu­stig. Í janúar voru stýri­vextir lækkaðir úr 17 í 15 prósent, öllum að óvörum, en í lok árs 2014 féll gengi rúblunnar um 46 prósent og brást Seðla­banki Rússlands við með því að hækka stýri­vexti í 17 prósent. Verðbólga mælist nú langt yfir fjögur prósent verð­bólu­markmiði, eða 16,7 prósent. Þrátt fyrir það telur Seðla­banki Rússlands að verðbólgu­horfur séu betri nú en áður, og að verðbólgu­markmiði verði náð árið 2017, að því er segir á vef breska ríkis­útvarpsins BBC.

Staða efnahags­mála í Rússlandi hefur versnað til muna á skömmum tíma, en mikið verðfall á olíu, úr 110 Bandaríkja­dölum á fatið í júlí í fyrra, í tæplega 60 Bandaríkja­dali nú. Þar sem olíu- og gasiðnaður er langsamlega stærsti og mikil­vægasti atvinnu­vegur Rússlands, þá hefur þetta verðfall haft neikvæð áhrif á rússneska hagkerfið, ekki síst þar sem viðskipta­þvinganir frá Evrópu­sambandinu og Banda­ríkjunum, vegna hernaðar­aðgerða í Úkraínu, hafa einnig haft neikvæð á rússneska hagkerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár